Já í ágúst getur gefið gott tækifæri til að tryggja betur lífsgæði komandi kynslóða Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar 21. apríl 2026 10:30 Í ágúst erum við aðeins að velja hvort við viljum sjá samning við Evrópusambandið eða ekki. Í umræðunni gleymist oft að þegar þjóðir setjast að samningaborði þarf að huga að öryggi og velferð til langrar framtíðar. Er hugsanlegt að við getum samið um betri og öruggari framtíð fyrir komandi kynslóðir á Íslandi? Förum yfir nokkur atriði sem við þurfum að sjá í samningi til að geta tekið upplýsta ákvörðun um aðilda að ESB: Efnahagslegt öryggi er grunnurinn Ísland býr við ofur smátt hagkerfi sem einkennst af sveiflum sem heimili og fyrirtæki finna svo sannarlega fyrir í óhagstæðum kjörum og óöryggi, sem kostar milljarða á ári og hefur mikil áhrif á lífskjör og samkeppnishæfni. Góður samningur þarf að taka á þessu: Skapa stöðugra rekstrarumhverfi. Bæta aðgang að fjármagni (lægri vexti). Gera ungu fólki kleift að skipuleggja framtíð sína með meiri vissu Hér viljum við sambærileg kjör og Danir hafa, m.a. tengt: húsnæði, vöxtum og atvinnu. Íslensk stjórn á auðlindum og sjálfbært samstarf um nýtingu þeirra Við ætlum að stýra okkar auðlindum með sjálfbærum hætti og stuðla að því sama hjá öllum ESB þjóðunum. Það er grundvallaratriði þegar við semjum um: fiskimiðin, orkuna og landið sjálft. En á sama tíma er spurningin hvernig við getum nýtt betur þá möguleika sem felast í stærra efnahagssvæði. Með nánari tengslum við Evrópusambandið opnast aðgangur að markaði með um 450 milljónum íbúa. Það þýðir sterkari samkeppnishæfni m.a. út frá: Fjölbreyttari tækifærum, aukinni alhliða samvinnu og meira öryggi í alþjóðlegu umhverfi. Meiri stuðningur og öryggi í náttúruhamförum Við búum á jaðri „hins byggilega heims“. Snjóflóð, jarðskjálftar og eldgosið við Grindavík er skýrt dæmi um þá óvissu sem Íslendingar búa við. Hver eru þau mörk á hamförum sem við ein og sér ráðum við, til dæmis ef eldgos verður við stærri byggð en Grindavík? Þetta er ekki fræðileg umræða, heldur raunverulegt öryggismál til langrar framtíðar. Sagt hefur verið „þú tryggir ekki eftir á“. Innviðir og byggðir skipta máli Sterk samfélög byggjast á traustum innviðum og lífvænlegum byggðum um allt land. Í samningi þarf að horfa til: Innviða eins og vegakerfis, stuðnings við atvinnu á landsbyggðinni, landbúnaðar og jafnvægis í búsetu. Við þekkjum að núverandi staða okkar er mjög veik og víða hefur nú þegar safnast upp milljarða innviðaskuld. Við ættum með traustari efnahag og sterkari samvinnu, að geta staðið betur að uppbyggingu og viðhaldi innviða Íslands. Getum við tryggt betur tækifæri komandi kynslóða? Hér er lykilatriði að ungt fólk á Íslandi sjái raunveruleg tækifæri til framtíðar, m.a. tengt: Fjölbreyttum störf, sambærilegum kjörum eins og best gerist. Það verði sterkari grunnur og möguleikar á farsælu lífi á Íslandi. Það er grunnur að því að fleiri vel menntaðir Íslendingar komi aftur heim og að við fáum fleira hæfileikaríka einstaklinga til að koma til okkar. Niðurstaða: Fyrst er að sjá samninginn og síðan ákveðum við já eða nei Í ágúst er ekki verið að taka ákvörðun um aðild að Evrópusambandið. Við erum einfaldlega að ákveða hvort við viljum sjá samning sem tekur á grundvallaratriðum, m.a.: efnahagslegu öryggi stjórn á auðlindum öryggi vegna náttúruhamfara traustari innviðum og byggðum Allt sem getur betur tryggt framtíðartækifæri komandi kynslóða. Munum að það er ekki langt síðan ungir Íslendingar fluttu til „Vesturheims“. Við erum tiltölulega sterk efnahagslega núna og samningsstaðan því nokkuð góð. Ég trúi því að flestir Íslendingar vilji vera frjálsir og halda áfram að vera stolt lýðræðisþjóð. Til þess að svo megi verða þurfum við að vera tilbúin til að taka þátt í sjálfbærri þróun á heimsvísu og tryggja sem best að komandi kynslóðir geti lifað við góð lífskjör og öryggi. Með góðum samningum við ESB getum við markað farsælli leið fyrir komandi kynslóðir Íslendinga. Höfundur er viðskiptafræðingur og stjórnarmaður í öldungaráði Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Þorvaldur Ingi Jónsson Mest lesið Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar