Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 20. apríl 2026 21:00 Ragna Björg hefur bakað úr súr í fjölda ára. Hún segir súrdeigsbrauð ekki það sama og súrdeigsbrauð. vísir/lýður valberg Ólíkt mörgum ríkjum í Evrópu gilda engar reglur hér á landi um það hvað brauð þurfi að uppfylla svo kalla megi það súrdeigsbrauð. Matarbloggari segir brauð með súr í ekki endilega súrdeigsbrauð.
Orðið súrdeigsbrauð vekur upp ákveðnar hugrenningar um handverk og gæði enda hefur það á síðustu árum orðið eins konar gæðastimpill í brauðhillunni, en nafnið segir aðeins hálfa söguna. Þetta kemur fram í nýju blaði Neytendasamtakanna þar sem segir að súrdeigsbrauð geti verið allt frá hæggerjuðu handverksbrauði yfir í iðnaðarframleidda vöru þar sem súrdeig er aðeins hluti af uppskriftinni. „Súrdeigsbrauð er orðið hálfgert markaðshugtak. Brauð með súr í er ekki endilega súrdeigsbrauð,“ segir Ragnar Björg Ársælsdóttir, matarbloggari sem hefur bakað úr súr í mörg ár. Hvað gerir brauð að súrdeigsbrauði? Til að brauð geti kallast súrdeigsbrauð í faglegum skilningi þurfi lyftingin í brauðinu að koma frá súr en ekki geri. Ef ger sér um stærstan hluta lyftingarinnar er tæknilega séð um gerbrauð að ræða, þó að súrdeig sé líka í uppskriftinni. Hér á landi gilda engar reglur um hvað brauð þurfi að uppfylla til að mega kallast súrdeigsbrauð, en í mörgum ríkjum Evrópu þarf að vera visst mikið hlutfall af súr til móts við hveitið svo að kalla megi það súrdeigsbrauð. „En margir iðnaðarframleiðendur eru að setja bara örlítið af súr eða þurrkuðum súr til að fá bragðið en nota að mestu leyti iðnaðarger eða pressuger.“ Og þeir mega það alveg, það eru engar reglur hér þegar kemur að súrdeigi? „Nei og það hefur enginn tekið þann bolta og skoðað hvort það megi kalla allt brauð súrdeigsbrauð sem er með lítið hlutfall af súrdeigi í. Um leið og þú ert komin með brauð sem er mestmegnis búið til úr ensímum eða rotvarnarefnum, jafnvel með meirihluta af venjulegu geri þá ertu bara komin með mjög framleitt samlokubrauð.“ Og því í höndum neytenda að skoða innihaldslýsingu á brauði. „Já nú þarf þetta að vera neytendavitund og þekking að kíkja á miðann á brauðinu og sjá: Er þetta súrdeigsbrauð með súr sem lyftir brauðinu og þroskar gerið eða er þetta gerdeigsbrauð sem er með örlítið af súr? Er þetta brauð með súr eða súrdeigsbrauð?“
Matur Neytendur Verslun Mest lesið „Þetta er ekki græðgi“ Viðskipti innlent Tim Cook stígur til hliðar Viðskipti erlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Viðskipti innlent Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Viðskipti innlent Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? Samstarf Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Viðskipti innlent Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari Atvinnulíf Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Viðskipti innlent Gjaldskylda sett á við Egilshöll Neytendur Fleiri fréttir Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Gjaldskylda sett á við Egilshöll Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Ekki hægt að fá bílastæði án bókunar Staðfesta ákvörðun um bann við fullyrðingum um bestu pakkaferðirnar Innkalla hafragraut vegna mögulegs aðskotahlutar Innkalla kerti vegna eldhættu Galli í hugbúnaði leiddi til rangra greiðsluseðla Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum Bankarnir byrjaðir að hækka vexti Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Hætta að taka við rúmfreku rusli á tveimur stöðvum Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Innkalla Íslandsnaut hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Sjá meira