Wiegman kenndi grasinu í Laugardal um Sindri Sverrisson skrifar 20. apríl 2026 08:31 Sarina Wiegman fylgist íbyggin á svip með leik Íslands og Englands á Laugardalsvelli á laugardaginn. vísir/Anton Sarina Wiegman, landsliðsþjálfari Englands, og leikmenn hennar fóru ekki í neinar grafgötur með það að afar erfitt hefði verið að innbyrða 1-0 sigurinn gegn Íslandi í Laugardalnum um helgina.
Eftir sigurinn er England áfram með fullt hús stiga, eða 12 stig, en Ísland þrjú að loknum fjórum umferðum af sex í undankeppni HM í Brasilíu. England berst við Spán um efsta sæti riðilsins og þar með öruggt sæti á HM en Ísland berst við Úkraínu (sem er enn án stiga) um hið dýrmæta 3. sæti riðilsins sem veitir mun auðveldari leið í umspili og heldur liðinu í A-deild. Það kom því ekkert annað til greina hjá Englandi en sigur á laugardaginn en Evrópumeistararnir voru stálheppnir að ná að landa honum, eins og lesa mátti úr orðum Wiegman í viðtali á ITV Sport. Hún benti þó á að nýja, blandaða grasið á Laugardalsvelli hefði gert leikmönnum erfitt fyrir með að spila hratt. „Þetta var mjög erfiður leikur. Mikill munur á fyrri og seinni hálfleik. Auðvitað var erfitt að láta boltann hreyfast á þessum velli. En í fyrri hálfleik spiluðum við ágætlega,“ sagði Wiegman. „Tempóið hefði getað verið aðeins meira. Við sköpuðum einhver færi en nýttum ekki góð tækifæri. Markið var hins vegar gott. Í seinni hálfleiknum pressuðu þær aðeins framar og við hefðum þurft að taka betri ákvarðanir, sérstaklega í þessum aðstæðum þegar við áttum erfitt uppdráttar. Og við vitum auðvitað að þær eru góðar í innköstum og hornspyrnum – við vörðumst þeim virkilega vel. En það komu snúin augnablik í þessum leik svo ég er mjög ánægð með að hafa unnið,“ sagði Wiegman. Hetja leiksins var án nokkurs vafa markvörðurinn harðsnúni Hannah Hampton sem átti ævintýralegar vörslur í leiknum. „Það er nú bara mitt verk. Við erum saman í þessu sem lið. Ég get ekki séð um að skora mörkin en ég get varist þeim. Við vinnum saman sem lið og hreykjum okkur af því,“ sagði Hampton við ITV. Hannah Hampton var stálheppin að fá ekki á sig mark gegn Íslandi, til að mynda hér þegar Sandra María Jessen komst ein gegn henni.vísir/Anton „Auðvitað hefðum við viljað stýra leiknum aðeins betur en við vitum líka að þær eru mjög ógnandi þegar þær komast á ferðina. Við vitum líka af því hve hættulegar þær eru í loftinu í föstum leikatriðum. Við þurfum að vera traustar í varnarleiknum, þetta tók á taugarnar en úrslitin voru góð fyrir okkur,“ sagði Hampton. Undankeppninni lýkur snemma í júní en Ísland spilar þá við Úkraínu á útivelli 5. júní og tekur svo á móti heimsmeisturum Spánar 9. júní.
Landslið kvenna í fótbolta HM 2027 í Brasilíu Laugardalsvöllur Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Sakar Infantino um fjárkúgun Fótbolti Fleiri fréttir United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Semenyo spenntur fyrir því að starfa undir nýja þjálfaranum Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? „Vorum miklu betri allan tímann“ „Sigurinn var innan seilingar“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Sjá meira