Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar 18. apríl 2026 07:01 Sjálfbærni er orðin eitt mest notaða hugtak samtímans og það er hætta á því að við hættum að taka eftir því. Við heyrum sífellt oftar talað um sjálfbærni, sjálfbæra þróun og sjálfbær fjármál. Orðin geta orðið að bakgrunnshljóði, eins og bíll sem þýtur framhjá á þjóðvegi 1. En sjálfbærni er hvorki tískubylgja né óljóst slagorð. Hún er einföld: hún er hugsun um heildina. Kjarninn er sá að efnahagur, samfélag og umhverfi eru ekki aðskilin svið heldur nátengd kerfi. Rask í einu hefur óhjákvæmilega áhrif á hitt. Þetta sést skýrt til dæmis í sjávarútvegi. Ef gengið er of nærri fiskistofnum er það ekki aðeins umhverfislegt vandamál heldur hefur það bein áhrif á atvinnu, útflutningstekjur og afkomu heilu byggðarlaganna. Sjálfbærni er því ekki aðeins umhverfismál, hún er jafnframt efnahags- og samfélagsmál. Við byggjum ekki upp sterkt atvinnulíf án félagslegs stöðugleika og trausts. Án trausts og stöðugleika byggjum við ekki upp sterkt atvinnulíf og án ábyrgðar í nýtingu auðlinda tryggjum við ekki lífsgæði til framtíðar. Sjálfbærni snýst um þetta jafnvægi. Efnahagsáskoranir sem við finnum öll fyrir Núverandi efnahagsástand dregur þetta samhengi skýrt fram. Há verðbólga, háir vextir og þrengri staða í ríkisfjármálum hafa áhrif á samfélagið allt. Heimili finna fyrir auknum þrýstingi og fram undan kunna að vera krefjandi mánuðir. Fyrirtæki standa á sama tíma frammi fyrir hækkandi kostnaði og erfiðari ákvörðunum um forgangsröðun í rekstri. Þetta er raunveruleikinn sem við stöndum frammi fyrir og hann er skiljanlegur. En þetta eru jafnframt tímar aukinnar óvissu. Í slíkum aðstæðum reynir meira á stjórnendur og ákvarðanatöku en áður. Þá dugar ekki lengur að horfa eingöngu til skamms tíma. Þvert á móti krefjast óvissutímar skýrari stefnu, betri forgangsröðunar og meiri fókus á það sem skapar raunveruleg verðmæti til lengri tíma. Ekki rétti tíminn til að hægja á Það væru skýr mistök að stíga skref til baka í sjálfbærnimálum núna. Að líta á þau sem munað sem má bíða betri tíma og horfa fram hjá sjálfbærni er í raun áhættusöm ákvörðun. Fyrirtæki sem gera það eru ekki að forðast kostnað, þau eru að taka meðvitaða áhættu sem getur haft veruleg áhrif á rekstur til lengri tíma. Jesper Brodin, fyrrverandi forstjóri IKEA, hefur bent á að sjálfbærni og hagnaður séu ekki andstæður heldur hluti af sömu heild. Fyrirtæki sem draga úr sóun, nýta auðlindir betur og fjárfesta í fólki eru betur í stakk búin til að takast á við breytingar. Sjálfbærni er því ekki byrði, hún er forsenda betri rekstrar til lengri tíma. Sama á við um mannauðinn. Fyrirtæki sem styðja starfsfólk sitt skapa tækifæri og byggja á virðingu eru ekki aðeins að gera það sem er siðferðilega rétt. Þau eru jafnframt að styrkja eigin rekstur, auka traust og bæta árangur. Þetta helst allt í hendur. Langhlaup en ekki skyndilausn Sjálfbærni er langhlaup. Hún kallar á þolgæði, skýra sýn og vilja til að horfa lengra en til næsta ársfjórðungs. Í sinni einföldustu mynd snýst hún um að skilja ekki vandann eftir fyrir aðra og að skilja að verðmætasköpun verður aðeins til þegar efnahagur, fólk og umhverfi vinna saman. Framtíðin mun kalla á meiri ábyrgð, meiri nýtni og betri ákvarðanir. Þar liggur raunveruleg velmegun. Ekki þegar við veljum auðveldustu leiðina, heldur þegar við veljum þá sem skapar mest verðmæti til lengri tíma. Höfundur er framkvæmdastjóri UN Global Compact Ísland Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfbærni Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar