Leitar að beinmergsgjöfum fyrir kærustuna sína Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. apríl 2026 07:02 Eren Dinkci, og kærasta hans Cinja sem þarf á beinmergsgjafa að halda. @eren_dinkci Knattspyrnumaðurinn Eren Dinkci biðlar til sem flestra að skrá sig sem beinmergsgjafa. Það gæti bjargað lífi kærustu hans.
Beiðni Dinkci er í samstarfi við þýsku félögin Freiburg og Heidenheim. Hinn 24 ára gamli leikmaður er á láni frá síðarnefnda félaginu til þess fyrrnefnda á þessu tímabili. Ástæðan fyrir frumkvæði Dinkçi er að kærasta hans greindist með brátt eitilfrumuhvítblæði í janúar. Nú leita aðstandendur að stofnfrumugjöfum sem geta hjálpað bæði henni og öðrum sem þjást af sjúkdómnum. Dinkci er framherji sem spilaði á sínum tíma fyrir bæði tuttugu ára landslið Þýskalands og nítján ára landslið Tyrkja. Hann er fæddur í Þýskalandi en af tyrkneskum ættum. Hann hefur skorað eitt mark í átta leikjum í þýsku deildinni á þessu tímabili. Gemeinsam für Cinja & viele Andere: FCH und SCF rufen zur DKMS Registrierung auf❗️Bei Cinja, der Partnerin von Eren Dinkçi, wurde Leukämie diagnostiziert. Gemeinsam mit der DKMS organisieren beide Clubs 2 große Registrierungsaktionen. Alle Infos: 👉 https://t.co/TydOMZwjJ3 pic.twitter.com/iVZ4i5dOLF— 1. FC Heidenheim 1846 e. V. (@FCH1846) April 14, 2026 Freiburg og Heidenheim sendu á þriðjudag frá sér sameiginlega yfirlýsingu ásamt þýsku beinmergsgjafaskránni. Þar er stuðningsmönnum gefinn kostur á að skrá sig sem gjafa í tengslum við leik liðanna í Freiburg um komandi helgi. Einnig verður boðið upp á sama möguleika í leik Heidenheim gegn St. Pauli og fólk getur einnig skráð sig á netinu. Í yfirlýsingunni kemur fram að Cinja, kærasta hins 24 ára gamla Dinkci, hafi greinst með hvítblæði fyrir stuttu. Enginn samsvarandi gjafi fannst innan fjölskyldunnar, sem varð til þess að knattspyrnumaðurinn hefur stigið fram opinberlega með beiðni um hjálp frá félögum sínum og þýsku beinmergsgjafaskránni. „Frá einu augnabliki til annars stöðvast allt og á sama tíma hefst ferðalag sem þú hefðir aldrei getað ímyndað þér,“ er haft eftir parinu. Að finna stofnfrumugjafa er síðasta tækifæri margra sem þjást af hvítblæði til að lifa sjúkdóminn af. Í yfirlýsingu þriðjudagsins kemur fram að á 12 mínútna fresti greinist nýtt tilfelli af hvítblæði í Þýskalandi.
Þýski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira