Mette Frederiksen leitar yfir miðju Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 12. apríl 2026 15:56 Mette Frederiksen formaður danskra jafnaðarmanna og Troels Lund Poulsen formaður Venstre hafa margra ára reynslu af samstarfi í fráfarandi ríkisstjórn Mette. EPA/Mads Claus Rasmussen Mette Frederiksen handhafi ríkisstjórnarmyndunarumboðsins í Danmörku segir stíf fundarhöld framundan við Venstre og Íhaldsflokkinn. Kannað verði hvort grundvöllur sé fyrir annarri stjórn þvert yfir miðju hins pólitíska litrófs.
Þingkosningar fóru fram 24. mars síðastliðinn og niðurstöðurnar voru ekki afgerandi sigur neins flokks. Rauða blokkin svokallaða bar nauman sigur úr býtum en á sætaskipaninni var ekki að sjá neitt borðliggjandi ríkisstjórnarsamstarf. Í færslu á samfélagsmiðlum gerir Mette Frederiksen, sem er enn með konunglegt umboð til ríkisstjórnarmyndunar sem formaður stærsta flokksins á þinginu, grein fyrir vikunni framundan. „Hingað til höfum við sérstaklega kannað möguleikann á því að mynda mið-vinstristjórn. Það var eðlilegast að byrja þar miðað við yfirlýsingar flokkanna eftir að úrslit kosninganna lágu fyrir. Viðræðurnar hafa sannfært mig um að slík ríkisstjórn hafi sannarlega mikla möguleika. Þess vegna höldum við fundum um þetta áfram í næstu viku,“ skrifar hún. „Sérstaklega um efnahagsmál. Báðir flokkar hafa sagt skýrt að þeir vilji helst hreina borgaralega stefnu. Án þess að skilgreina hvað það þýðir í raun pólitískt. En ég held að Danir búist við ákveðnu raunsæi af okkur öllum.“ Mette segir fráfarandi ríkisstjórn jafnaðarmanna, Venstre og Moderaterne hafa verið mikið gagnrýnda en að hún hafi samt sem áður verið ánægð með hana. Engri afgerandi niðurstöðu virðist því hafa verið náð á vikunum sem hafa liðið frá því að Danir gengu til kosninga en áfram halda þreifingar. Í næstu viku fundar Mette einnig með þingmönnum Grænlands og Færeyja á danska þinginu.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Sjá meira