„Frábær“ Ísak skoraði og fagnaði langþráðum sigri Sindri Sverrisson skrifar 12. apríl 2026 15:33 Ísak Bergmann Jóhannesson þurfti að bíða lengi eftir sigri, eða frá 30. janúar. Getty/Christof Koepsel Þjálfari Ísaks Bergmanns Jóhannessonar hjá Köln sagði hann hafa spilað stórkostlega í síðustu leikjum og valdi Skagamanninn því í byrjunarliðið í dag. Niðurstaðan varð fyrsti sigur liðsins frá því í janúar og Ísak skoraði.
Köln mætti Werder Bremen á heimavelli í dag og fagnaði langþráðum 3-1 sigri, þar sem Ísak skoraði lokamark leiksins í uppbótartíma. Þjálfarinn René Wagner, sem tók við Köln til bráðabirgða fyrir þremur vikum eftir brottrekstur Lukas Kwasniok, valdi Ísak í byrjunarliðið og útskýrði val sitt í útsendingu DAZN fyrir leik: „Ísak átti líka að byrja í síðustu viku en hafði átt langt ferðalag frá Kanada svo hann kom í staðinn inn af bekknum, en hann spilaði frábærlega í síðustu leikjum. Þess vegna kemur hann aftur inn í byrjunarliðið í dag,“ sagði Wagner. Ísak hafði nefnilega komið inná sem varamaður í 2-2 jafnteflinu við Frankfurt fyrir viku, í fyrsta leik eftir jafnteflin við Haítí og Kanada með íslenska landsliðinu, en hafði áður verið í byrjunarliðinu í jafnteflum við Borussia Mönchengladbach og Hamburg. Hann hefur hins vegar, líkt og aðrir leikmenn Kölnar, þurft að bíða lengi eftir sigri og hafði liðið spilað átta leiki í röð án sigurs þar til það vann Bremen í dag. Said El Mala kom Köln yfir á 7. mínútu og Ragnar Ache skoraði annað mark á 65. mínútu. Romano Schmid minnkaði muninn úr víti tíu mínútum síðar en Ísak innsiglaði svo sigurinn í blálokin. Þetta var annað mark Ísaks í þýsku 1. deildinni í vetur. Sigurinn þýðir að Köln fer upp fyrir Bremen og er með 30 stig í 13. sæti af 18 liðum, þegar fimm umferðir eru eftir. Liðið er fimm stigum fyrir ofan St. Pauli sem er í umspilsfallsæti og níu stigum fyrir ofan Wolfsburg sem er í fallsæti.
Þýski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Israel frá Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira