Fyrsta konan sem stýrir karlaliði í einni bestu deild Evrópu Sindri Sverrisson skrifar 12. apríl 2026 13:01 Marie-Louise Eta heldur áfram að brjóta niður múra og er nú orðin aðalþjálfari karlaliðs Union Berlín. Getty/Inaki Esnaola Hin 34 ára gamla Marie-Louise Eta hefur skráð nafn sitt kyrfilega í sögubækurnar með því að verða fyrsta konan sem stýrir liði í einni af fimm bestu deildum karlafótboltans í Evrópu.
Eta hefur verið ráðin til að stýra Union Berlín í efstu deild Þýskalands út tímabilið, eftir að Steffen Baumgart var rekinn í kjölfar 3-1 taps gegn botnliði FC Heidenheim í gær. Eta hafði verið aðstoðarþjálfari Union Berlín frá því í nóvember 2023, þegar hún varð fyrsta konan til að gerast aðstoðarþjálfari í efstu deild Þýskalands. Hún stýrði liðinu svo í fjarveru þáverandi þjálfara, Nenad Bjelica, þegar hann tók út þriggja leikja bann í byrjun árs 2024. Eta hefur einnig þjálfað U19-lið Union Berlín frá síðasta sumri og hún mun taka við kvennaliði félagsins næsta sumar. View this post on Instagram A post shared by Bundesliga (@bundesliga) Karlalið Union Berlín er í 11. sæti af 18 liðum í þýsku deildinni, 11 stigum frá beinu falli niður um deild þegar fimm umferðir eru eftir. Liðið hefur hins vegar aðeins unnið tvo af fjórtán leikjum á árinu 2026. „Ég er í skýjunum yfir því að félagið treysti mér fyrir þessari áskorun. Einn helsti styrkleiki Union hefur alltaf verið, og verður áfram, getan til að þétta raðirnar í svona stöðu. Ég er sannfærð um að við náum þeim stigum sem við þurfum,“ sagði Eta. Hún lék sjálf með yngri landsliðum Þýskalands og vann Meistaradeild Evrópu, með Turbine Potsdam, áður en hún sneri sér að þjálfun.
Þýski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Israel frá Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Sjá meira