Handbolti

Arnór með bakið upp við vegg en Einar fagnar

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Einar Bragi Aðalsteinsson er leikmaður Kristianstad.
Einar Bragi Aðalsteinsson er leikmaður Kristianstad.

Kristianstad er komið með 2-0 forystu í Íslendingaeinvíginu gegn Kristianstad í átta liða úrslitum sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta.

Einar Bragi Aðalsteinsson og félagar í Kristianstad fögnuðu 28-31 sigri á útivelli gegn Karlskrona í kvöld.

Einar skoraði tvö mörk fyrir Kristianstad, jafn mikið og Arnór Viðarsson skoraði fyrir Karlskrona. 

Arnór Viðarsson gæti verið á leið í sumarfrí bráðlega. 

Þrjá sigra þarf til að vinna einvígið og Kristianstad getur því klárað það í næsta leik.

Engum ætti að koma úrslitin mikið á óvart enda varð Kristianstad deildarmeistari en Karlskrona endaði í 8. sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×