Markmiðið með kaupunum á þeim réttindum er að nýta gervigreindarlausnir Lucinity til að styrkja og nútímavæða tæknilausnir Oracle á þessum markaði. Oracle býður viðskiptavinum sínum upp á heildstæða lausn á þessu sviði, sem nær yfir áreiðanleikakannanir, færsluvaktanir, rannsóknir, málastjórnun og skýrslugjöf til eftirlitsaðila. Kerfið hefur verið þróað í 25 ár og er notað af mörgum af stærstu fjármálastofnunum í heimi.
Oracle, meðal annars stofnað núverandi stjórnarformanni Larry Ellison, er eitt af stærstu fyrirtækjum í heiminum með markaðsvirði upp á 400 milljarða Bandaríkjadala og námu tekjur þess um 57 milljörðum dala í fyrra.
Í tilkynningu frá Lucinity, sem var stofnað árið 2018, segir að tækni félagsins sé í dag í daglegri notkun í Bandaríkjunum, á Norðurlöndum og víða í Evrópu. Nýlega var sagt frá því að Lucinity ætlaði í auknum mæli að einbeita sér að því að veita viðskiptavinum sínum þjónustu sem tengist rannsóknum á fjármálaglæpum og innleiðingu á gervigreind til aðstoðar við þá vinnu.
Með þessum samningi verður tæknin okkar innleidd í eitt stærsta kerfi á þessu sviði í heiminum. Það sýnir enn fremur hvað lítið teymi frá Íslandi getur skapað og byggt upp.
„Fjármálastofnanir þurfa í dag að rannsaka sífellt fleiri mál, takast á við auknar kröfur frá eftirlitsaðilum og hafa takmarkaðan mannafla til að vinna úr öllu þessu. Lucinity notar auðskýranlega gervigreind og verkferla sem hjálpa teymum að vinna hraðar og betur, án þess að missa yfirsýn,“ segir félagið í tilkynningu.
Sýnir hvað lítið teymi frá Íslandi getur byggt upp
Áður en Oracle ákvað að nota tækni Lucinity sem grunn að nútímavæðingu sinna kerfa, lagðist fyrirtækið í mikla vinnu við tæknilegar markaðsrannsóknir. „Það er gríðarleg viðurkenning fyrir Lucinity að fyrirtæki af þeirri stærðargráðu sem Oracle er, hafi ákveðið að byggja á tækni sem byggð var á Íslandi í stað þess að þróa þær sjálft,“ segir í tilkynningunni.
Daníel Pálmason, sem tók við sem forstjóri Lucinity undir lok síðasta árs, segir rannsóknir á fjármálaglæpum vera vandamál sem hefur stækkað hraðar en þær lausnir sem eru í boði á markaðnum. „Með þessum viðskiptum staðfestir Oracle að Lucinity hefur náð að leysa þetta vandamál. Með þessum samningi verður tæknin okkar innleidd í eitt stærsta kerfi á þessu sviði í heiminum. Það sýnir enn fremur hvað lítið teymi frá Íslandi getur skapað og byggt upp.“
Á árinu 2024 námu tekjur samstæðu Lucinity samtals ríflega 2,8 milljónum dala og tapið var um 8,5 milljónir dala. Í nóvember sama ár kláraði félagið útgáfu á þriggja ára breytanlegu skuldabréfi til fjárfesta að fjárhæð tæplega 3,3 milljónir dala til að styðja við vöxt þess.
Undir lok lok ársins 2025 réðst Lucinity í endurskipulagningu til að treysta fjárhagsstöðu félagsins. Allt hlutaféð var skrifað niður auk þess sem eigendur tiltekinna breytanlegra skuldabréfa skuldajöfnuðu þeim á móti nýjum hlutum og þá kom inn aukið hlutafé frá meðal annars dönskum fjárfesti. Í kjölfarið tók Daníel við sem forstjóri af Guðmundi Kristjánssyni, stofnanda Lucinity, sem varð þess í stað starfandi stjórnarformaður félagsins, en einnig komu nýir inn í stjórn þeir Kristian Nygaard Johansen, Bragi Fjalldal og Eric Lagier.