„Þetta er svolítið ýkt þarna úti“ Valur Páll Eiríksson skrifar 10. apríl 2026 08:00 Sveindís Jane Jónsdóttir gerir það gott vestanhafs. Vísir/Bjarni Sveindís Jane Jónsdóttir nýtur þess að kíkja á leiki hjá körfuboltaliðum Keflavíkur við komuna til Íslands. Hún nýtur rigningarinnar ekki eins vel, orðin vön Kaliforníusólinni en hún hefur farið frábærlega af stað á nýju tímabili vestanhafs. „
Það er alltaf gott að koma heim og hitta fólkið sitt. Veðrið er smá leiðinlegt en maður tekur því. Við elskum rigninguna og þetta er bara skemmtilegt,“ segir Sveindís Jane sem sást á leik Keflavíkur við Val í úrslitakeppninni í körfubolta í vikunni og fylgdi því eftir með því að kíkja á leik KR við Keflavík í Vesturbæ í gærkvöld. „Maður þurfti að styðja Keflavík. Það er alltaf gaman að fara á körfuboltaleiki, ég ætla að kíkja á KR -Keflavík á eftir líka. Ég er aðeins að skoða mig um hérna á Íslandi og gera það sem er gaman, sem er að fara á íþróttaviðburði.“ Kvennalandsliðið kom saman til æfinga í fyrradag og hefur æft í töluverðri rigningu undanfarna tvo daga. Veðrið er aðeins frábrugðið því sem Sveindís hefur fengið að venjast í Los Angeles þar sem hún leikur með liði Angel City í NWSL-deildinni. „Það er bara geggjað. Frábært veður altlaf og maður getur alltaf kíkt út að tana, ég er svolítið í því. Það er mikið um að vera, og gengur vel í fótboltanum líka. Þetta er búið að vera skemmtilegt,“ segir Sveindís. Leikmaður mánaðarins Angel City hefur byrjað nýja leiktíð vel. Liðið vann fyrstu þrjá leiki sína í deildinni. „Við töpuðum reyndar síðasta leik. En þetta hefur gengið mjög vel. Þessi deild er mjög skemmtileg, það geta öll lið unnið alla svo þrír sigrar í fyrstu fjórum er bara frábært,“ segir Sveindís, en líkt og hún nefnir tapaði liðið síðasta leik fyrir landsleikjahlé. Sveindís hefur átt stóran þátt í góðri byrjun liðsins en hún var valin besti leikmaður mars-mánaðar eftir þrjú mörk og tvær stoðsendingar í fyrstu þremur leikjunum. „Þetta er svolítið ýkt þarna úti. Þau elska svona verðlaun, þau eru mikið að setja leikmenn í sviðsljósið. Það er mikil umfjöllun og það er bara gaman,“ segir Sveindís sem fagnar verðlaununum en fer ekki fram úr sér. „Maður verður bara áfram. Þetta gefur manni svo sem ekkert inni á vellinum nema bara sjálfstraust. Ég vonandi held áfram að skora og standa mig vel.“ Sveindís lék áður með Wolfsburg í Þýskalandi og hefur þurft að venjast nýjum veruleika vestanhafs. Hún nýtur sín vel í einni bestu deild heims, sem er töluvert jafnari en deildirnar í Evrópu. „Mesta breytingin er ferðalögin. Maður þarf að fljúga langt í leiki. Ég var að spila í Orlando og þurfti að fljúga í fimm tíma í útileik og það er mjög mikið af ferðalögum. Deildin er geggjuð, það geta öll lið unnið alla. Það er mesta breytingin líka. Það eru tvö góð lið í deildunum í Evrópu en þarna úti er mjög mikil barátta í hverjum einasta leik og liggur við er hver leikur úrslitaleikur,“ segir Sveindís Jane. Mikilvægur undirbúningur fyrir lykilleik Fram undan hjá landsliðinu eru mikilvægir leikir við Úkraínu og England á Laugardalsvelli. Landsliðsglugginn er sérlega langur og mikilvægt að nýta heila viku af æfingum sem liðið fær fyrir leikinn við Úkraínu í næstu viku. „Það er geggjað. Við fáum einn frídag líka, sem gerist aldrei, svo maður getur aðeins hlaðið batteríin. Við höfum mjög mikinn tíma fyrir fyrsta leik, það er mjög gott fyrir okkur. Fyrsti leikurinn er rosalega mikilvægur fyrir okkur,“ segir Sveindís. Ísland stefnir á þriðja sæti riðilsins sem inniheldur ásamt Úkraínu stórlið Englands og Spánar. Þau deila toppsætinu eftir sigra á Íslandi og Úkraínu í fyrstu tveimur leikjunum. Ísland þarf sigur heima gegn Úkraínu ætli liðið sér þriðja sætið. „Þær eru hörkugóðar. Þær hafa skorað gegn báðum þessum liðum sem okkur tókst ekki. Þær eru mjög beinskeyttar og greinilega góðar að klára sín færi. Við verðum að passa okkur vel þar þegar þær beita skyndisóknum. En við erum líka mjög góðar, ég held þetta verði skemmtilegur leikur að horfa á og við ætlum okkur sigur,“ segir Sveindís Jane. Viðtalið má sjá í heild í spilaranum að neðan. Klippa: Sveindís sleikir sólina í Kaliforníu
Landslið kvenna í fótbolta Bandaríski fótboltinn HM 2027 í Brasilíu Mest lesið Allt í rugli í Formúlunni: „Hvaða þvæla er í gangi?“ Formúla 1 Strákarnir sitja fastir Fótbolti Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku Fótbolti Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Gat ekki munað nafnið eftir sextán hringi Sport Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Fótbolti Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Fótbolti Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Fótbolti Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Fótbolti „Við þurfum að gera margt betur“ Körfubolti Fleiri fréttir Heimir íhugar ekki afsögn og UEFA þurfi að skoða sín mál Strákarnir sitja fastir Hundur truflaði sigur Skota í Skopje Arnar bregst við banni og meiðslum: Þrír nýir með landsliðinu til Tallinn Myndaveisla: Flottur sigur Íslands og fötum fækkað í stúkunni Dásamaði Ronaldo: „Hættir aldrei að vera merkasta táknmynd Portúgals“ Ánægður með óvænt hrós: „Gaman að heyra þetta frá þér“ Glódís hélt hreinu í toppslag og Bayern náð 48 í röð án taps Gylfi sárkvalinn: Missti andann og fer í myndatöku „Mikael Anderson kom inn með þvílíka orku“ „Eistar eru með uppskriftina gegn Íslandi“ Einkunnir Íslands: Orri Steinn og Hákon Arnar báru af Yamal með glæsimark í enn einum sigri Spánar „Lærði bara mikilvæga reglu“ Eistar bjuggu til toppslag við Íslendinga Sjáðu mörk Orra og Mikaels gegn Búlgaríu „Erum að spila á móti ofboðslega slöku liði“ „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Söguleg niðurlæging í Króatíu Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Uppgjörið: Ísland - Búlgaría 3-0 | Einstaklingsgæði tryggðu þrjú stig Lagði upp í öruggum sigri Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Klopp býður við rasískum ásökunum Er katastrófa að vinna ekki í dag? Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Sjá meira