Stjörnuleikmenn sæta rannsókn eftir kaup á lúxusúrum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2026 07:29 Spænsku fótboltamennirnir Santi Cazorla og David Silva eru meðal þeirra sem hafa keypt þennan smyglvarning. Getty/Jasper Juinen Það er ekkert leyndarmál að fótboltastjörnur kunna að meta lúxusvörur en það getur orðið dýrkeypt að kaupa þær, sérstaklega ef það er gert með ólöglegum hætti.
Nokkrir fótboltamenn eru til rannsóknar hjá yfirvöldum í Andorra eftir að hafa keypt lúxusúr, að því er spænska blaðið El Mundo greinir frá. Ástæðan er sú að grunur leikur á að úrin séu smyglaður varningur. Samkvæmt rannsókninni voru úrin flutt inn af fyrirtæki til Andorra, þar sem skattar eru lægri en á Spáni, og þaðan voru þau síðan seld til fótboltastjarnanna. Þegar úrin voru síðan afhent viðskiptavinunum er sagt að þau hafi ekki verið tollafgreidd. Úrin eru meðal annars af lúxusmerkjunum Rolex og Patek Philippe. Meðal leikmanna sem eru á lista yfir grunaða í rannsókninni eru meðal annarra Dani Carvajal úr Real Madrid, Santi Cazorla úr Real Oviedo, César Azpilicueta úr Sevilla og Thomas Partey úr Villarreal, samkvæmt frétt El Diario. Þar að auki er sagt að hinn fyrrverandi leikmaður Manchester City, David Silva, sem nú er hættur, sé einnig hluti af rannsókninni. Partey er sá leikmaður sem hefur greitt mest til fyrirtækisins. Fyrrverandi miðjumaður Arsenal á að hafa keypt þrjú Patek Philippe-úr fyrir 415 þúsund evrur, eða um sextíu milljónir íslenskra króna. Aðalgrunaðinn í málinu er maðurinn á bak við andorrska fyrirtækið sem stóð fyrir smyglinu og sölunni. Hann á yfir höfði sér allt að átta ára fangelsi, samkvæmt El Diario. Ekki kemur fram hvaða refsingu fótboltamennirnir eiga á hættu en samkvæmt El Mundo er búist við að andorrsk yfirvöld hefji yfirheyrslur yfir öllum hlutaðeigandi „innan skamms“.
Spænski boltinn Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Jóla-Paul er á leiðinni og einhver verður rotaður“ Sport „Mourinho er eins og Simpsons-þátturinn“ Sport Uppgjörið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Fótbolti „Enski boltinn er annar heimur“ Enski boltinn Fleiri fréttir Grealish í agabanni hjá Everton Emil Atlason á leið í Fram Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ „Enski boltinn er annar heimur“ Nýr heimavöllur í Milan mun koma í stað San Siro „Mér þætti það skrýtið ef að allir kölluðu mig Sir“ FIFA hagnaðist um 620 milljarða á miðum á HM-leiki Cristiano Ronaldo með þrennu Víkingar láta Einar Guðna fara Landsliðsmaður í frí hjá félagi sínu vegna persónulegra ástæðna Hallgrímur kveður KA „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ Viktor Bjarki var í byrjunarliði FCK í öruggum sigri Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Flauta Péturs á hilluna Verða án Sesko fram í janúar Engin uppalin spilaði með Fram „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Sjá meira