Áskorun til Þingvallanefndar Álfheiður Ingadóttir skrifar 9. apríl 2026 08:01 Ég undirrituð, sem gegndi formennsku í Þingvallanefnd á árunum 2009-2013, skora á nefndina að hætta við og draga til baka leyfi fyrir útitónleikum, sem fyrirhugað er að halda á Þingvöllum 20. júní n.k. Ég skora á nefndina að virða og gæta réttinda almennings til frjálsrar farar um þjóðgarðinn á Þingvöllum og hverfa frá þeirri fyrirætlan að loka þjóðgarðinum fyrir öðrum en þeim sem greiða sérstaklega fyrir aðgang að þessu einkasamkvæmi sem Þingvallanefnd hefur heimilað. Það er nefnilega almenningur og þjóðin í heild sem er eigandi þjóðgarðsins á Þingvöllum og þessari sömu þjóð hefur einnig verið falið að varðveita og gæta staðarins sérstaklega sem hluta af menningararfleifð heimsins, skv. skrá UNESCO. Það er í hróplegu ósamræmi við inntak samningsins um heimsminjar á Þingvöllum og þvert á markmið og eðli laga um þjóðgarðinn á Þingvöllum að loka honum nema gegn greiðslu aðgangseyris að einkasamkvæmi. Það er því alvarleg stefnubreyting og hættulegt fordæmi sem í þessari ákvörðun felst, fordæmi sem getur orðið til þess að Þingvöllum verði breytt í hefðbundið útihátíðarsvæði, enda verður Þingvallanefnd ófær um að synja öðrum tónleikahöldurum um sömu aðstöðu. Þá dugir lítt að segja að ein tegund tónlistar sé betri eða menningarlegri en önnur og því sé ekki sama Jón og séra Jón. Þessu til áréttingar bendi ég á að Þingvallanefnd starfar í umboði þings og þjóðar og nefndinni ber sem slíkri að gæta sérstaklega að jafnræði þegnanna. Ef nefndin stendur við samþykki sitt um að loka þjóðgarðinum vegna lokaðrar útihátíðar hefur verið lagður út rauður dregill fyrir t.d. IceGuys í boði Pepsi Max, eins og einhver benti á. Það er enn tækifæri fyrir Þingvallanefnd að staldra við og endurskoða þessa ákvörðun. Það er nóg af stöðum fyrir 20 þúsund manna útitónleika, en aðeins einn Þingvöllur við Öxará. Reykjavík 8. apríl 2026 Höfundur er fyrrverandi heilbrigðisráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þingvellir Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Ég undirrituð, sem gegndi formennsku í Þingvallanefnd á árunum 2009-2013, skora á nefndina að hætta við og draga til baka leyfi fyrir útitónleikum, sem fyrirhugað er að halda á Þingvöllum 20. júní n.k. Ég skora á nefndina að virða og gæta réttinda almennings til frjálsrar farar um þjóðgarðinn á Þingvöllum og hverfa frá þeirri fyrirætlan að loka þjóðgarðinum fyrir öðrum en þeim sem greiða sérstaklega fyrir aðgang að þessu einkasamkvæmi sem Þingvallanefnd hefur heimilað. Það er nefnilega almenningur og þjóðin í heild sem er eigandi þjóðgarðsins á Þingvöllum og þessari sömu þjóð hefur einnig verið falið að varðveita og gæta staðarins sérstaklega sem hluta af menningararfleifð heimsins, skv. skrá UNESCO. Það er í hróplegu ósamræmi við inntak samningsins um heimsminjar á Þingvöllum og þvert á markmið og eðli laga um þjóðgarðinn á Þingvöllum að loka honum nema gegn greiðslu aðgangseyris að einkasamkvæmi. Það er því alvarleg stefnubreyting og hættulegt fordæmi sem í þessari ákvörðun felst, fordæmi sem getur orðið til þess að Þingvöllum verði breytt í hefðbundið útihátíðarsvæði, enda verður Þingvallanefnd ófær um að synja öðrum tónleikahöldurum um sömu aðstöðu. Þá dugir lítt að segja að ein tegund tónlistar sé betri eða menningarlegri en önnur og því sé ekki sama Jón og séra Jón. Þessu til áréttingar bendi ég á að Þingvallanefnd starfar í umboði þings og þjóðar og nefndinni ber sem slíkri að gæta sérstaklega að jafnræði þegnanna. Ef nefndin stendur við samþykki sitt um að loka þjóðgarðinum vegna lokaðrar útihátíðar hefur verið lagður út rauður dregill fyrir t.d. IceGuys í boði Pepsi Max, eins og einhver benti á. Það er enn tækifæri fyrir Þingvallanefnd að staldra við og endurskoða þessa ákvörðun. Það er nóg af stöðum fyrir 20 þúsund manna útitónleika, en aðeins einn Þingvöllur við Öxará. Reykjavík 8. apríl 2026 Höfundur er fyrrverandi heilbrigðisráðherra.
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar