Orbán sakaður um sprengjutilræði Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 6. apríl 2026 10:05 Helsti andstæðingur hans í komandi kosningum segist hafa fengið meldingar um tilræðið fyrir fram. Getty Serbar segjast hafa fundið gríðarlega öflugar sprengjur við leiðslu sem flytur rússneskt jarðgas til Ungverjalands og víðar. Helsti andstæðingur Orbán Ungverjalandsforseta sakar hann um að hafa ætlað að sprengja leiðsluna í loft upp.
Viktor Orbán Ungverjalandsforseti greindi frá því á samfélagsmiðlum í gær að Aleksandar Vučić, forseti Serbíu, hefði gert sér viðvart um þetta. Leiðslan er hluti af TurkStream-leiðslukerfinu sem flytur jarðgas frá Rússlandi um evrópska hluta Tyrklands og meðal annars til Ungverjalands. Hann sagði rannsókn standa yfir og að hann hefði kallað saman þjóðaröryggisráð Ungverjalands vegna málsins. Bakpokar með sprengjum og hvellhettum Ungverjar ganga til þingkosninga á sunnudaginn næsta og kannanir benda til þess að Péter Magyar og flokkur hans Tisza gætu velt Orbán úr stóli eftir sextán ára setu sem forsætisráðherra. Samkvæmt Aleksandar Vučić forseta Serbíu fann serbneski herinn tvo bakpoka með sprengjum og hvellhettum í Kanjiža-héraði nokkur hundruð metrum frá jarðgasleiðslunni. Hann sagði ekki hver væri talinn standa sprengjutilræðinu að baki. Fékk meldingar um tilræði Péter Magyar birti færslu á samfélagsmiðlum í kjölfar þess að fréttirnar bárust. Þar sagðist hann hafa fengið meldingar um það úr ólíkum áttum að eitthvað kynni að ske í Serbíu um páskana sem „hefði mögulega eitthvað með gasleiðslu að gera.“ „Ég skora á forsætisráðherrann að upplýsa almenning tafarlaust um þessa atburðarás og bjóða mér á fund varnarmálaráðsins, því hver sem skipulagði þessa ögrun, þá verður það ríkisstjórn TISZA sem þarf að leysa úr þeirri stöðu sem upp er komin. Ég skora ennfremur á Viktor Orbán að hætta, að minnsta kosti yfir hátíðirnar, að dreifa hræðsluáróðri og valda uppnámi, eins og rússneskir ráðgjafar hans hafa lagt fyrir hann. Ég vil líka taka það skýrt fram að honum mun ekki takast að koma í veg fyrir kosningarnar næstkomandi sunnudag,“ sagði hann.
Ungverjaland Serbía Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira