Lærisveinar Sigga Ragga á toppnum í Færeyjum Aron Guðmundsson skrifar 4. apríl 2026 19:23 Það hefur oft verið léttara yfir Sigga Ragga á hliðarlínunni en í sumar Vísir/Pawel Lærisveinar Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar í liði NSÍ Runavíkur tylltu sér á topp færeysku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 2-1 sigri á útivelli gegn B68 Toftir í kvöld.
NSÍ Runavík endaði í þriðja sæti færeysku deildarinnar á síðasta tímabili og hefur farið afar vel af stað undir stjórn Sigga Ragga á yfirstandandi tímabili en Íslendingurinn tók við stjórnartaumunum hjá liðinu fyrir tímabilið. Aron Knudsen kom NSÍ Runavík yfir með marki strax á þrettándu mínútu í leik dagsins en snemma í seinni hálfleik jafnaði Sebastian Lau Nielsen metin fyrir B68 Toftir. 1-1. Komið var fram á 82. mínútu þegar að Jann Julian Benjaminsen kom NSÍ Runavík aftur yfir og innsiglaði 2-1 sigur liðsins. Um þriðja sigur NSÍ Runavíkur í fyrstu fjórum leikjum liðsins í deildinni er að ræða. Þar fyrir utan hefur liðið gert eitt jafntefli og er enn ósigrað undir stjórn Sigga Ragga. NSÍ Runavík er sem stendur á toppi færeysku deildarinnar með tíu stig, þremur stigum meira en B36 Þórshafnar sem á leik til góða.
Færeyski boltinn Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira