Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar 4. apríl 2026 10:30 Hjúskapur á Íslandi grundvallast á ákvæðum hjúskaparlaga nr. 31/1993, sem setja skýran lagaramma um réttindi og skyldur hjóna, bæði meðan hjúskapur varir og við skilnað. Löggjöfin leggur áherslu á efnahagslegt sjálfstæði hjóna í fjármálum, sem felur í sér ákveðið forræði yfir eigin eignum og ábyrgð á eigin skuldum. Á undanförnum áratugum hefur skilnaðartíðni aukist, en samkvæmt Hagstofu Íslands lýkur um 40% hjónabanda með lögskilnaði. Þessi tölfræði dregur fram mikilvægi þess að reglur um skiptingu eigna og skulda séu skýrar og skiljanlegar fyrir fólk. Meginreglan við fjárskipti er hin svokallaða helmingaskiptaregla, sem í grunninn felur í sér jafna skiptingu hjúskapareigna milli hjóna. Í framkvæmd kemur þó oft upp ágreiningur um beitingu reglunnar sem rekja má til misskilnings. Þrátt fyrir að skráning eigna og skulda sé grundvallaratriði við mat á hlutdeild hjóna samkvæmt helmingaskiptareglu, er oft ranglega talið að hún skipti ekki máli. Þessi lögvilla kemur fólki oft í opna skjöldu þegar hjón standa frammi fyrir uppgjöri vegna skilnaðar. Meginreglur um eignarhald og skuldaábyrgð Í 4. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 er almennt fjallað um forræði eigna og skuldaábyrgð. Samkvæmt ákvæðinu ræður hvort hjóna um sig yfir eigin eignum og ber ábyrgð á eigin skuldum. Þessar meginreglur, sem einnig eru áréttaðar í 58. og 67. gr. hjúskaparlaga, undirstrika fyrrnefndan kjarna laganna um efnahagslegt sjálfstæði hjóna. Eignir hjóna teljast til hjúskapareigna, nema annað sé ákveðið í kaupmála eða leiði af öðrum heimildum, sbr. 54. gr. hjúskaparlaga. Þetta felur nánar tiltekið í sér að verðmæti sem maki á við stofnun hjúskapar, eða eignast síðar, verður hjúskapareign hans, en ekki sameiginleg eign beggja hjóna. Hjón öðlast því ekki beinan eignarrétt yfir eignum hvors annars, heldur stofnast gagnkvæmur kröfuréttur við fjárslit þegar helmingaskiptareglan kemur til framkvæmda. Af þessum sökum er mikilvægt að hjón hafi skýra yfirsýn yfir fjárhagsstöðu sína, enda geta meginreglur þessar skipt sköpum við uppgjör. Framkvæmd helmingaskiptareglunnar Við fjárskipti hjóna er öllum hjúskapareignum skipt að teknu tilliti til skulda sem dragast frá eignum. Meginregluna um helmingaskipti er að finna í 103. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993, sem kveður á um að hvor maki um sig eigi „tilkall til helmings úr skírri hjúskapareign hins nema annað leiði af ákvæðum laga.” Markmið reglunnar er að tryggja sanngjarna hlutdeild hjóna í þeim verðmætum sem myndast hafa í hjónabandinu og stuðla þannig að jafnri stöðu þeirra við skilnað. Algengur misskilningur er að helmingaskiptareglan feli í sér einfalda samlagningu allra hjúskapareigna og jafna skiptingu á því sem eftir stendur, eftir að skuldir hafa verið dregnar frá. Rétt framkvæmd felur hins vegar í sér að fyrst er afmarkað hvaða eignir teljast hjúskapareignir og hvoru hjóna þær tilheyra. Með sama hætti ber að afmarka skuldir hvors maka í samræmi við meginregluna um sjálfstæða skuldaábyrgð. Skuldir eru síðan dregnar frá eignum hvors um sig til að fá út hreina hjúskapareign beggja hjóna, eins og mælt er fyrir um í 100. gr. hjúskaparlaga. Helmingaskiptareglan felur svo í sér að hvor maki á kröfu um helming af þessari hreinu eign hins. Áhrif eignastöðu hjóna Þótt reglan um helmingaskipti bendi til þess að eignum sé skipt jafnt, tryggir hún ekki alltaf jafnræði í raun. Ef maki hefur neikvæða eignastöðu, þ.e. skuldir hans eru umfram eignir, grípur hinn makinn í tómt þar sem engin hrein hjúskapareign er til skiptanna. Á hinn bóginn, ef sá maki sem ekkert fær er sjálfur efnaður og býr yfir jákvæðri eignastöðu, á skuldsetti makinn rétt á helmingi af þeirri hreinu eign. Sem dæmi má nefna að hafi annar maki 100 milljónir króna í hreinni hjúskapareign en eignastaða hins er neikvæð, ber hinum eignameiri að greiða 50 milljónir króna samkvæmt helmingaskiptareglunni, án þess að fá nokkuð í staðinn. Þannig blasir við að beiting reglunnar getur í einstaka tilvikum leitt til ósanngjarnrar niðurstöðu, sér í lagi ef hjúskapur hefur staðið stutt og verulegur munur er á eignastöðu og framlögum aðila til eignamyndunar. Í slíkum tilvikum er heimilt að víkja frá umræddri meginreglu, en frumforsenda þess er að hún leiði til bersýnilega ósanngjarnra málaloka í skilningi 104. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993. Þessi undantekningarheimild er túlkuð þröngt í dómaframkvæmd, sem undirstrikar stöðu helmingaskiptareglunnar sem grundvallarreglu. Niðurlag Í ljósi alls framangreinds er ljóst að formleg skráning eigna og skulda skiptir töluverðu máli í hjúskap. Helmingaskiptareglan byggir á tiltekinni aðferðafræði sem ekki má rugla saman við einfalda jöfnun allra hjúskapareigna. Þótt reglan sé rótgróin í norrænum hjúskaparrétti og byggist á sanngirnissjónarmiðum, getur hún í sumum tilfellum leitt til niðurstöðu sem telst afar ósanngjörn. Með 104. gr. hjúskaparlaga nr. 31/1993 er þó heimilað að víkja frá reglunni að uppfylltum tilteknum lagaskilyrðum. Dómstólar hafa hins vegar beitt þessari heimild af varfærni og túlkað með þröngri lögskýringu. Af þeim sökum er brýnt að bæði hjónaefni og hjón hafi fulla yfirsýn yfir fjárhagsmálefni sín og skilji efni og framkvæmd helmingaskiptareglunnar, komi til skilnaðar. Höfundur er löglærður fulltrúi hjá lögmannsstofunni Sævar Þór & Partners. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lögmennska Mest lesið Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Skoðun Kosturinn sem er ekki á kjörseðlinum Egill Gauti Þorkelsson skrifar Skoðun „Þið þurfið stærri bát“ Erlingur Erlingsson skrifar Skoðun Verð gæti stórlækkað á Íslandi Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar Skoðun Gigtin sést ekki alltaf – en hún getur breytt öllu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hversu miklar umferðartafir má bjóða þér með skólaárinu? Valur Elli Valsson skrifar Skoðun Atvinnuviðtal hjá ESB? Brynjar Níelsson skrifar Skoðun Kvalajárn Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Að kaupa atkvæði þjóðar Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Framtíðin, björt eða svört? Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Ert þú þessi hálfviti? Guðrún Tinna Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar reikniformúla verður að ráðningarþaki sjúkraliða Sandra B. Franks skrifar Sjá meira
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar
Skoðun ESB: Hvað kostar að vera utangarðs? Innviðir, tæknilegt samstarf og varnarmál Sigurður Emil Pálsson skrifar