Bergrós vann eina grein og varð efst Íslendinga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. apríl 2026 08:30 Bergrós Björnsdóttir stóð sig best af Íslendingum í fjórðungsúrslitum undankeppni heimsleikanna í CrossFit. @bergrosbjornsdottir Íslenska CrossFit-konan Bergrós Björnsdóttir er áfram best meðal Íslendinga í undankeppni heimsleikanna í CrossFit en fjórðungsúrslitin fóru fram um helgina.
Bergrós vann fyrstu greinina af fjórum með glæsilegri frammistöðu og endaði að lokum í 51. sæti yfir allan heiminn og í sextánda sæti í Evrópu. Eftir að hafa verið best í heimi í grein eitt varð Bergrós í 23. sæti í grein tvö og svo í 66. sæti í fjórðu og síðustu greininni. Það gekk ekki eins vel í grein þrjú þar sem hún endaði í 248. sæti sem dró hana nokkuð niður listann. Greinin sem hún vann snerist um tvær umferðir af tíu fimmtán metra sprettum, tuttugu hnébeygjum með 36 kílóa stöng yfir höfði og þrjátíu burpees-æfingum yfir stöng. Næsta íslenska konan á eftir Bergrós var Steinunn Anna Svansdóttir sem náði 74. sætinu og Guðbjörg Valdimarsdóttir varð síðan í 152. sæti. Steinunn Anna varð í 30. sæti í Evrópu, Guðbjörg tók þar 54. sætið en Elín Birna Hallgrímsdóttir (66. sæti) var einnig með hundrað efstu í Evrópu. Tanja Davíðsdóttir (114. sæti) og Hrafnhildur Emilía Helgadóttir (117. sæti) sáu svo til þess að Ísland átti sex konur meðal þeirra efstu 120 í Evrópu. Bergrós endaði níu sætum ofar en efsti íslenski karlinn sem var Rökkvi Hrafn Guðnason. Rökkvi endaði í 60. sæti á heimsvísu og í sautjánda sæti meðal Evrópumanna. Rökkvi var í 25. sæti í annarri grein en í 104. sæti eða neðar í hinum þremur. Næsti íslenski karlinn á eftir honum var Haraldur Holgeirsson í 193. sæti. Bjarni Leifs Kjartansson varð svo í 279. sæti. Haraldur varð í 48. sæti í Evrópu en Bjarni í 66. sæti. Jón Þorri Zar Jónsson (160. sæti), Óskar Marinó Jónsson (168. sæti) voru líka meðal tvö hundruð hæstu í Evrópu. Það á síðan eftir að koma betur í ljós hvar næstu skref liggja og á hvaða undanúrslitamótum okkar fólk fær inni. Þar verður mjög hörð keppni um að tryggja sér farseðilinn á heimsleikana. View this post on Instagram A post shared by Morning Chalk Up (@morningchalkup)
CrossFit Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Fleiri fréttir Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjá meira