Stríðandi viðhorf Sjálfstæðismanna til tjáningarfrelsis Ágúst Elí Ásgeirsson skrifar 31. mars 2026 08:31 Um aldamótin höfðaði Kjartan Gunnarsson, þáverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, meiðyrðamál á hendur Sigurði G. Guðjónssyni lögmanni vegna ummæla í blaðagrein. Málsvörn Sigurðar byggði á því að ummælin væru varin af tjáningarfrelsinu, hornsteini íslenskrar stjórnskipunar. Sigurður var sýknaður í héraðsdómi og Hæstarétti en Kjartan skaut málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu sem vísaði kærunni frá. Á Sambandsþingi ungra sjálfstæðismanna í fyrra var Kjartan sérstakur heiðursgestur og fögnuðu flokksmenn sjötíu og fjögurra ára afmæli hans með mikilli viðhöfn í gamla Landsbankahúsinu. Þar á meðal var Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður flokksins, og voru þau Kjartan nánast óaðskiljanleg allt kvöldið ef marka má ljósmyndir sem birtust í Smartlandi á mbl.is í vikunni á eftir. Í gær barst Guðrúnu stefna frá samtökunum Solaris vegna meintra meiðyrða hennar í þættinum Spursmál á mbl.is. Í tilkynningu frá Guðrúnu stendur eftirfarandi: „Það er greinilegt að samtökin Solaris vilja með stefnunni fá dómstóla til að hefta tjáningarfrelsi mitt sem varið er af stjórnarskrá Íslands og mannréttindasáttmála Evrópu.“ Hún hyggst taka til varna með þjóðarhagsmuni að leiðarljósi. Það er hjartnæmt að sjá hvernig Guðrún, riddari tjáningarfrelsisins á Íslandi, hefur ræktað svo hlýja vináttu við einn fremsta andstæðing þess í réttarsögu landsins. Höfundur er áhugamaður um Sjálfstæðisflokkinn. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tjáningarfrelsi Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Um aldamótin höfðaði Kjartan Gunnarsson, þáverandi framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, meiðyrðamál á hendur Sigurði G. Guðjónssyni lögmanni vegna ummæla í blaðagrein. Málsvörn Sigurðar byggði á því að ummælin væru varin af tjáningarfrelsinu, hornsteini íslenskrar stjórnskipunar. Sigurður var sýknaður í héraðsdómi og Hæstarétti en Kjartan skaut málinu til Mannréttindadómstóls Evrópu sem vísaði kærunni frá. Á Sambandsþingi ungra sjálfstæðismanna í fyrra var Kjartan sérstakur heiðursgestur og fögnuðu flokksmenn sjötíu og fjögurra ára afmæli hans með mikilli viðhöfn í gamla Landsbankahúsinu. Þar á meðal var Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður flokksins, og voru þau Kjartan nánast óaðskiljanleg allt kvöldið ef marka má ljósmyndir sem birtust í Smartlandi á mbl.is í vikunni á eftir. Í gær barst Guðrúnu stefna frá samtökunum Solaris vegna meintra meiðyrða hennar í þættinum Spursmál á mbl.is. Í tilkynningu frá Guðrúnu stendur eftirfarandi: „Það er greinilegt að samtökin Solaris vilja með stefnunni fá dómstóla til að hefta tjáningarfrelsi mitt sem varið er af stjórnarskrá Íslands og mannréttindasáttmála Evrópu.“ Hún hyggst taka til varna með þjóðarhagsmuni að leiðarljósi. Það er hjartnæmt að sjá hvernig Guðrún, riddari tjáningarfrelsisins á Íslandi, hefur ræktað svo hlýja vináttu við einn fremsta andstæðing þess í réttarsögu landsins. Höfundur er áhugamaður um Sjálfstæðisflokkinn.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar