Einn mánuður af átökum: Börn gjalda mest fyrir stríðið í Mið-Austurlöndum Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar 28. mars 2026 08:00 Fyrirsagnir um hækkandi olíuverð og óróa á fjármálamarkaði hafa verið ríkjandi í heimspressunni síðustu vikur, á kostnað fréttaflutnings um þau sem raunverulega gjalda mest fyrir átökin í Mið-Austurlöndum - börnin okkar. Nú þegar einn mánuður er liðinn frá því árásir hófust á Íran og átök brutust út í Líbanon hafa þúsundir fjölskyldna misst heimili sín, öryggi, og lífsafkomu, og börn hafa tapað bernskunni. Áhrifanna gætir langt út fyrir átakasvæðin. Barnaheill – Save the Children starfa í 109 löndum, og við finnum fyrir þeim ótta sem börn um allan heim búa nú við - líka þar sem átökin eru ekki áþreifanleg. Börn eru hrædd og kvíðin, og mörg óttast að stríð geti brotist út í þeirra nánasta umhverfi. Skólar breytast í neyðarskýli og leikvellir í vöruhús Í Líbanon hefur ein milljón manna misst heimili sín. Fjölskyldur, sem hafa flúið átökin og leita skjóls í neyðarskýlum, reyna hvað þær geta til að skapa eðlilegt heimilislíf við óeðlilegar aðstæður. Börn halda dauðahaldi í leikföng, skólatöskur og gæludýr sér til huggunar, nú þegar veröld þeirra hefur verið snúið á hvolf. Skólar sem ætlaðir eru til mennta börn hýsa nú fjölskyldur sem eru á flótta, og leikvellir og íþróttamannvirki hafa breyst í vöruhús og dreifingarstöðvar fyrir hjálpargögn. Ekkert barn ætti að þurfa upplifa slíkar hörmungar. Frá því árásir á Íran hófust þann 28. febrúar, hafa rúmlega fjórar milljónir manna misst heimili sín, þar og í nágrannalöndunum. Hundruð barna hafa látið lífið. Fjölskyldur þeirra, hvort sem er í Íran, Líbanon eða Ísrael, syrgja það sem aldrei verður, syrgja framtíð barna sem engan þátt áttu í þessu stríði en guldu fyrir það með lífi sínu. Afleiðingar þessara átaka mun gæta löngu eftir að sprengjurnar hætta að falla. Eyðileggingin mun vara árum saman. En kostnaðurinn við þetta stríð er ekki bundinn við Mið-Austurlönd. Hjálpargögn föst í Persaflóa og lífsbjargandi verkefnum stefnt í hættu Eldflauga- og drónaárásir hafa eyðilagt orkuinnviði og lokað flutningsleiðum um Persaflóa, þar á meðal Hormússund, þar sem um það bil fimmtungur af olíu- og gasbirgðum heimsins fer um. Skipaleiðum hefur verið breytt, og flutningskostnaður fer stigvaxandi. Þetta veldur verðaukningu á matvælum, eldsneyti og birgðaflutningi um allan heim. Fyrir margar fjölskyldur getur slík verðhækkun á lífsnauðsynjum ógnað getu þeirra til að lifa af. Afleiðingarnar hafa þegar haft áhrif á starf mannúðarsamtaka. Tafir á flutningi hjálpargagna frá Barnaheillum – Save the Children stefna í hættu lífsbjargandi verkefnum sem styðja hundruð þúsunda barna í löndum eins og Súdan, Jemen og Afganistan. Við getum gert svo miklu betur. Stöðvum stríðið strax! Ekkert barn ætti að vera skotmark í stríði. Leiðtogar heimsins verða að bregðast tafarlaust við. Þeir verða að finna leiðir að friði. Allir aðilar átakanna verða að fara að alþjóðlegum mannúðarlögum. Árásum á skóla, sjúkrahús og hjálparstarfsmenn verður að linna, og leyfa verður að fjálsan flutning á hjálpargögnum. Börn eiga ekki að gjalda fyrir stríð sem þau eiga enga aðild að. Ekkert barn ætti að alast upp á flótta frá heimili sínu, að kennslustofum sé breytt í neyðarskýli, eða leikvellinum í vöruhús fyrir hjálpargögn. Þetta er samt daglegur veruleiki milljóna barna í Mið-Austurlöndum. Það verður að stöðva þetta stríð strax og tryggja framtíð barnanna okkar. Höfundur er framkvæmdastjóri Barnaheilla – Save the Children á Íslandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tótla I. Sæmundsdóttir Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar