Þarf að kæra íslenska ríkið? Eyþór Eðvarðsson skrifar 27. mars 2026 07:47 Draga þarf verulega úr losun gróðurhúsalofttegunda til að halda hlýnun jarðar innan þeirra marka sem vísindin leggja til og Parísarsamkomulagið kveður á um. Til þess þurfa allar þjóðir að leggja sitt af mörkum. Þetta er eitt mikilvægasta verkefni samtímans: vel gerlegt, einfalt í orðum en krefjandi í framkvæmd. Aðgerðir þurfa að koma hratt til áður en loftslagsbreytingar ná hættulegum vendipunktum. Einn mælikvarði á árangur ríkja í loftslagsmálum er Climate Change Performance Index. Ísland er ekki metið á þeim kvarða en miðað við losun á mann og þróun síðustu ára er líklegt að við myndum raðast neðarlega, þrátt fyrir grænu orku. Losun Íslands er um 12 tonn CO₂-ígilda á mann þegar landnotkun er undanskilin, samanborið við um 7 tonn í Evrópusambandinu, 8-9 tonn í Kína og um 14 tonn í Bandaríkjunum. Þegar landnotkun er hins vegar talin með hækkar talan á Íslandi í 30-35 tonn á mann vegna losunar frá framræstu votlendi, á meðan hún lækkar í Evrópusambandinu og Bandaríkjunum þar sem skógar binda kolefni. Evrópa dregur úr losun en Ísland dregst aftur úr Gögn frá European Environment Agency sýna að losun gróðurhúsalofttegunda í Evrópusambandinu hefur dregist saman um rúmlega 30% frá 1990, á sama tíma og hagkerfi sambandsins hefur vaxið um meira en 60%. Þar hefur ETS, viðskiptakerfi Evrópusambandsins með losunarheimildir, reynst öflugt verkfæri til að setja verð á losun og knýja fram tæknibreytingar í orku og iðnaði. Á Íslandi hefur losun samkvæmt losunarbókhaldi Umhverfis- og orkustofnunar á sama tíma aukist um 6% frá 1990. Íslensk stjórnvöld áhugasamari um undanþágur en loftslagsvandann Takmarkaður áhugi yfirvalda á loftslagsvandanum er áhyggjuefni. Hann birtist meðal annars í því að hagsmunagæsla gagnvart stærstu losunarfyrirtækjum landsins virðist oft vega þyngra en raunverulegar aðgerðir til að draga úr losun. Í stað þess að nýta helstu verkfæri Evrópu til að knýja fram samdrátt hefur stjórnvöldum reynst tamara að sækja um undanþágur frá þeim. Annað áhyggjuefni er hversu erfitt er að fá skýra mynd af því hvað raunverulega hefur verið gert. Í svari við fyrirspurn á Alþingi varðandi útgjöld til loftslagsmála kom fram að á árunum 2017-2024 hafi 144,3 milljörðum króna verið varið í loftslagsmál. Hins vegar er óljóst í hvaða aðgerðir þeim fjármunum var ráðstafað og með hvaða árangri. Sú óvissa hefur vakið spurningar um hvort rekstur opinberra stofnana sé að hluta talinn fram sem loftslagsútgjöld. Skýrar sundurliðanir og gagnsæi skortir og ráðherra hefur ekki gert fullnægjandi grein fyrir málinu. Dapurlegast er þó að ráðherra loftslagsmála sjái ástæðu til að halda því opnu að ráðist verði í leit og vinnslu á olíu. Stefna og veruleiki fara ekki saman Ísland stefnir að 55% samdrætti í losun fyrir 2030 og kolefnishlutleysi fyrir 2040. Samkvæmt samkomulagi við Evrópusambandið felur skuldbinding Íslands í sér um 41% samdrátt í samfélagslosun fyrir 2030 miðað við árið 2005. Bráðabirgðaframreikningar Umhverfis- og orkustofnunar sýna hins vegar að með núverandi aðgerðum stefnir í einungis 20-27% samdrátt fyrir 2030. Niðurstaðan er því að Ísland mun að óbreyttu ekki ná að standa við skuldbindingar sínar. Dómstólar sífellt mikilvægari í loftslagsbaráttunni Samkvæmt Global Climate Litigation Report: 2025 Status Review höfðu um allan heim alls 3.099 loftslagstengd mál verið höfðuð fram til 30. júní 2025. Málum af þessu tagi fjölgar hratt og dómstólar gegna æ stærra hlutverki í því að knýja fram aðgerðir. Í Hollandi staðfesti Hæstiréttur árið 2019 dóm í máli Urgenda Foundation sem skyldaði stjórnvöld til að herða loftslagsaðgerðir. Í Þýskalandi úrskurðaði Stjórnlagadómstóll Þýskalands árið 2021 að loftslagslög landsins gengju ekki nógu langt og legðu of mikla byrði á framtíðarkynslóðir. Sambærileg mál eru nú rekin víða um Evrópu. Þróunin sýnir að loftslagsstefna er ekki lengur aðeins pólitískt val heldur einnig lagaleg skylda. Hvernig gæti málsókn gegn íslenska ríkinu litið út? Málsókn gegn íslenska ríkinu gæti byggst á því að stjórnvöld hafi brugðist skyldum sínum til að vernda borgara gegn fyrirsjáanlegri loftslagsáhættu, meðal annars á grundvelli Mannréttindasáttmála Evrópu um rétt til lífs og fjölskyldulífs. Þrjú atriði gætu sérstaklega styrkt málatilbúnað: (1) hið mikla bil milli yfirlýstra markmiða og raunverulegra aðgerða, (2) afar há losun á mann í alþjóðlegum samanburði, og (3) langvarandi aðgerðaleysi gagnvart stærsta losunarþætti landsins, framræstu votlendi. Kærendur gætu verið einstaklingar eða samtök sem telja að ófullnægjandi loftslagsaðgerðir stjórnvalda setji framtíð þeirra í hættu. Dómstólar gætu þá komist að þeirri niðurstöðu að ríkið hafi brugðist skyldum sínum og krafið stjórnvöld um að setja fram raunhæfa og trúverðuga áætlun um samdrátt í losun. Tími aðgerða er núna Þrátt fyrir græna orku og ímynd um að Ísland sé að standa sig vel er hin kalda staðreynd sú að hér hefur of lítið gerst. Eðlilegt er því að spyrja hvað þurfi til svo ríkið grípi til nauðsynlegra aðgerða. Ef stjórnvöld bregðast ekki við gæti sama þróun orðið hér og annars staðar í Evrópu að dómstólar neyði þau til að setja fram raunhæfa og metnaðarfulla aðgerðaáætlun og fylgja henni eftir. Greinarhöfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Ísland leggi sitt af mörkum til að takast á við loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Eyþór Eðvarðsson Mest lesið Halldór 24.10.26 Halldór Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hallalaus fjárlög mega ekki kosta farsæld barna Sveitarstjórnarfólk Framsóknar skrifar Skoðun Bráðum verðum við ósýnileg Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar Skoðun Kröfurnar standa enn Georg Páll Skúlason skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sameinuðu þjóðirnar í 81 ár: Lýðræði og mannréttindi verja sig ekki sjálf Eva Harðardóttir,Erlingur Erlingsson,Helen María Ólafsdóttir,Páll Ásgeir Davíðsson,Rakel Anna Boulter,Viktoría Valdimarsdóttir,Þorvarður Atli Þórsson,Þórður Kristinsson skrifar
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar