Samningaeftirlitið - bannað börnum! Hannes Friðriksson skrifar 26. mars 2026 16:01 „Ég er gamall maður,“ eins og söguhetjan í Felix og Klara myndi sennilega segja. Man sumt og annað betur. Ég man til að mynda þegar ekkert sjónvarp var á fimmtudögum og hvernig nefnd fárra manna ákvað hvað væri bannað í kvikmyndahúsum og hvað ekki. Nefndin hét Kvikmyndaeftirlit ríkisins. Held að þeir hafi líka ráðið hvað mátti sjá í sjónvarpinu og hvað ekki. Upp á skjáinn kom texti. „Bönnuð börnum.“ Þá var maður rekinn úr stofunni og hurðinni lokað. Það voru erfiðar stundir. Það er óhætt að segja að þessi minning kemur nú upp í hugann þegar umræður um hugsanlegar aðildarviðræður við Evrópusambandið eru á dagskrá. Nema enn svæsnari forsjárhyggja en þá var. Nú virðist hópur karla og kvenna hafa tekið sig saman um að koma í veg fyrir að þjóðin fái að sjá hvernig hugsanlegur samningur við ESB gæti litið út. Þau viti hvernig slíkur samningur líti út, jafnvel þó hann hafi ekki verið skrifaður. Bannað börnum og þjóðinni allri. Óskrifaði samningurinn, sem ekki er búið að semja um, er sem sagt mjög svæsinn. Nú á að að reka alla frá borðinu og út úr stofunni. Samningaeftirlitið fyrirskipar svo. Samningaeftirlitið hrærir þessa dagana súran graut í stórri skál. Öllu sullað saman í þeirri von að grauturinn falli að smekk landsmanna. Fullveldið tapað, allt á niðurleið í Evrópu og hagvöxtur enginn. Samt eru vextir og stýrivextir þar miklu lægri. Erfitt að átta sig á hvað á að halda, enda er tilgangurinn sá. Þeir vilja gera einfalt mál mjög flókið. Spurningin er samt mjög einföld. „Á að halda áfram viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu?” Svarið getur verið já eða nei. Verði svarið já verður gengið til samninga og aðildarsamningurinn lagður fyrir þjóðina til samþykkis eða höfnunar. Einfaldara getur það varla orðið né lýðræðislegra. Verði svarið nei höldum við áfram í hversdagleika mylluhjólsins sem við sjálf höfum skapað. Spurningunni er beint til þjóðarinnar. Hvernig á sú framtíð að vera sem við viljum skapa okkur! Eru möguleikar á að aðildasamningur að ESB geti gert líf okkar eitthvað einfaldara og betra, eða verður það bara verra? Það fáum við ekki að vita nema að aðildasamningur verði lagður á borðið, og þjóðin sjálf, sem valdið hefur, fái að kjósa um hann, hvort sem Samingareftirlitinu líkar betur eða verr. Ég vil vita meira og þess vegna segi ég JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst. Höfundur er ellilífeyrisþegi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
„
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar