Gott að eldast í Hveragerði Lárus Jónsson og Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir skrifa 26. mars 2026 12:02 Umbætur og uppbygging í málefnum eldri borgara í Hveragerði Hveragerðisbær hefur löngum verið þekktur fyrir gæðin sem felast í því að eyða hér sínum efri árum. Öflug og metnaðarfull öldrunarþjónusta er eitt af einkennum Hveragerðisbæjar, sem við erum afar stolt af. Það er markmið Okkar Hveragerðis að auka enn frekar gæði efri áranna í Hveragerð og á kjörtímabilinu hefur verið unnið markvisst að því að skapa enn betri umgjörð og þjónustu fyrir eldri íbúa bæjarins. Ný og metnaðarfull stefna, öldungaráð og íbúaþing 60+ Öldungaráð er notendaráð eldri borgara til ráðgjafar bæjarstjórn um þjónustu við aldraða og framkvæmd og þróun öldrunarmála. Seta í öldungaráði er nú launuð eins og önnur nefndarseta á vegum bæjarins og hefur starf ráðsins verið einkar öflugt undanfarin misseri. Öldungaráð stóð fyrir íbúaþingi fyrir 60+ síðastliðið vor með að markmiði að virkja íbúa til þátttöku og greiningar á þörfum eldri íbúa og skapa vettvang fyrir eldri íbúa og fagaðila til að ræða þarfir og hugmyndir. Á þinginu var ákall um fjölbreytta þjónustu með áherslu á valdeflingu og endurhæfingu, markvissa og aðgengilega upplýsingamiðlun, fjölgun búsetukosta og þjónustukjarna með áherslu á félags- og færnimiðaða búsetu ásamt stærri húsakosti fyrir tómstundir og samkomur fyrir vaxandi fjölda eldri íbúa o.fl. Niðurstöður íbúaþingsins veita mikilvægar vísbendingar um þarfir og óskir eldri íbúa sem verða nýttar við áframhaldandi þróun þjónustu og stefnu bæjarins, en á kjörtímabilinu hefur verið mótuð metnaðarfull stefna í málefnum eldri borgara í Hveragerði. Gott að eldast Stefna Hveragerðisbæjar gerir ráð fyrir öflugri einstaklingsmiðaðri þjónustu við eldri íbúa með stuðningi veittum á jafningjagrundvelli sem gerir íbúum kleift að búa sem lengst í heimahúsi. Í ágúst sl. var tekið mikilvægt skref í átt að heildstæðri og einstaklingsmiðaðri þjónustu við eldri íbúa Hveragerðis. Var það gert með undirritun samkomulags á milli Hveragerðisbæjar, HSu og Áss hjúkrunarheimilis um samþætta heimaþjónustu undir heitinu Gott að eldast. Með því eru sameinaðir kraftar heilbrigðis- og félagsþjónustu til að tryggja að eldri íbúar fái þjónustu á réttum tíma og af réttum aðilum svo náð verði samfellu milli þjónustustiga. Íbúar geti þannig búið áfram á eigin heimili og notið efri áranna með öryggi, reisn og góðum stuðningi. Framtakið byggir á bættri samvinnu og miðlægri veitingu þjónustunnar hjá Ási til að stuðla að bættum lífsgæðum íbúa. Efld virkni og dregið úr félagslegri einangrun Í stefnu Hveragerðisbæjar er jafnframt gert ráð fyrir auknum möguleikum eldra fólks til þátttöku í samfélaginu til að efla virkni og draga úr félagslegri einangrun og auknu samstarfi Frístundamiðstöðvarinnar Bungubrekku og Félags eldri borgara í Hveragerði. Félag eldri borgara er afar mikilvægt í þessu tilliti, en það hlúir að hvers konar áhugamálum eldri íbúa, stuðlar að heilsurækt og útivist og rekur félags- og tómstundaaðstöðu. Nýverið var í þjónustusamningi bæjarins við félagið bætt við árlegu framlagi bæjarins vegna starfsmanns með fasta viðveru á skrifstofu félagsins. Stuðningur þessi við öflugt starf félagsins er unninn í samvinnu við Bungubrekku, í takt við framtíðarsýn fyrir Bungubrekku sem frístundamiðstöð allra aldurshópa. Mikil ánægja hefur verið með fyrirkomulagið og þann aukna stuðning við starf félagsins sem í þessu felst. Fjölgun húsnæðiskosta og þjónustumiðstöð fyrir 60+ Í stefnu Hveragerðisbæjar kemur einnig fram að stefnt sé að því að fjölga húsnæðiskostum og koma upp þjónustumiðstöð fyrir eldri íbúa bæjarins. Í viðræðum Hveragerðisbæjar á kjörtímabilinu vegna uppbyggingar þróunarreita innan bæjarfélagsins hefur þessum sjónarmiðum verið haldið statt og stöðugt á lofti, og ýmsir möguleikar skoðaðir. Þar á meðal má nefna uppbyggingu á þróunarreit, í nálægð við alla helstu þjónustu, sem er nú á lokastigum í deiliskipulagsvinnu, þar sem koma á upp gæðaríkri byggð í nálægð við náttúruna fyrir eldri aldurshópa. Einnig hefur á kjörtímabilinu komið í sölu fyrsti áfangi íbúða í nýju hverfi í Lindarbrún með þjónustusamningum við Heilsustofnun NLFÍ. Einnig má nefna að í byggingu er glæsileg ný 18 rúma viðbygging við hjúkrunarheimilið Ás ásamt endurbótum á eldri hjúkrunarrýmum og breytingu tvíbýla yfir í einbýli. Bæjarstjórn hefur átt í góðu samtali við Félag eldri borgara í Hveragerði um uppbyggingu þjónustumiðstöðvar fyrir 60+ og hefur komið á fót undirbúningshóp vegna þessa þar sem sæti eiga fulltrúar eldri borgara, kjörnir fulltrúar og starfsmenn bæjarins. Hópurinn vinnur og skilar nú á vormánuðum skýrslu til bæjarstjórnar með forsendum fyrir þjónustukjarna, tillögum að staðarvali auk þarfagreiningar á starfsemi hans og hlutverki. Í framhaldinu er fyrirhugað að skrefa verkefnið áfram með hliðsjón af niðurstöðunum með það að markmiði að í Hveragerði rísi glæsilegur nýr þjónustukjarni til eflingar þjónustu við eldri íbúa. Gæðasamfélag fyrir allan aldur Okkar Hveragerði leggur ríka áherslu á gæðaríkt samfélag fyrir allan aldur þar sem fjölskyldan, frá yngstu meðlimum til þeirra elstu, geti notið þess sem lífið hefur uppá að bjóða til fulls. Hveragerði - bær í blóma! Höfundar eru Lárus Jónsson, 1. sæti á lista Okkar Hveragerðis í bæjarstjórnarkosningum 2026 og Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir, 2. sæti á lista Okkar Hveragerðis í bæjarstjórnarkosningum 2026, bæjarfulltrúi og varaformaður bæjarráðs Hveragerðisbæjar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar