Köldu lofti beint til landsins og djúp lægð nálgast Atli Ísleifsson skrifar 25. mars 2026 06:54 Í nótt kemur djúp lægð inn á Grænlandshaf, skil frá henni ganga norðaustur yfir landið á morgun og valda illviðri í flestum landshlutum. Vísir/Vilhelm Hæð yfir Grænlandi og lægð við Noreg beina köldu lofti yfir landið í dag. Veðurstofan á von á fremur hægum vindi víðast hvar en austantil megi þó búast við norðvestan strekkingi eða allhvössum vindi.
Á vef Veðurstofunnar segir að kalda loftinu fylgi dálítil él norðanlands og einnig við vesturströndina þegar líður á daginn. Í öðrum landshlutum verður þó þurrt og allvíða bjart. Frost verður yfirleitt á bilinu tvö til tíu stig í dag, en herðir á frosti í innsveitum í kvöld. „Í nótt kemur djúp lægð inn á Grænlandshaf, skil frá henni ganga norðaustur yfir landið á morgun og valda illviðri í flestum landshlutum. Það snýst því í vaxandi suðaustan- og austanátt í nótt, víða 18-28 m/s í fyrramálið og talsverð snjókoma eða slydda, hvassast suðvestanlands, en hægari og úrkomuminna um landið norðaustanvert. Eftir hádegi fer veður ört batnandi á Suður- og Vesturlandi í kjölfar skilanna með sunnan strekkingi og slydduéljum, en norðan- og austantil má búast við austan hvassviðri og snjókomu fram á kvöld. Hlýnar smám saman. Fyrir hádegi á morgun má því búast við sannkallaðri stórhríð á Suður- og Vesturlandi, gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út og ferðalög ekki ráðleg. Eins og fyrr segir mun veður fara ört batnandi á þessum slóðum eftir hádegi, en norðan- og austanlands er líklegt að veðrið valdi samgöngutruflunum fram á kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Suðaustan 18-28 m/s um morguninn og talsverð snjókoma eða slydda, hvassast suðvestantil, en hægari og úrkomuminna um landið norðaustanvert. Snýst í sunnan 8-15 eftir hádegi með slydduéljum, en suðaustan hvassviðri og snjókoma norðan- og austantil fram á kvöld. Hlýnar í veðri, hiti um eða yfir frostmarki síðdegis. Á föstudag: Gengur í norðan 13-23 vestantil, hvassast og snjókoma á Vestfjörðum, annars stöku él. Hægari vindur og skúrir eða él í öðrum landshlutum. Norðan og norðvestan 10-18 og snjókoma síðdegis, en úrkomulítið syðra. Kólnar smám saman. Hvessir suðaustantil um kvöldið. Á laugardag: Minnkandi norðvestanátt um morguninn og styttir upp, frost 1 til 8 stig. Vaxandi suðaustanátt eftir hádegi, 18-25 og snjókoma eða slydda undir kvöld, en heldur hægari og úrkomuminna um landið norðaustanvert. Hlýnar í veðri. Á sunnudag: Norðlæg eða breytileg átt og snjókoma eða slydda, en dálítil slydduél sunnanlands. Hiti kringum frostmark. Á mánudag: Vestlæg eða breytileg átt og él, en þurrt að mestu á Suðaustur- og Austurlandi. Hiti breytist lítið. Á þriðjudag: Vestlæg átt og él víða um land. Kalt í veðri.
Veður Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Loksins slíðrað sverðin Innlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Innlent Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Innlent Fleiri fréttir Víða kaldi og skúrir Víðáttumikil lægð sem grynnist smám saman Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Gefa út gular veðurviðvaranir Tvær lægðir á leiðinni Veðrið ætti ekki að spilla hrekkjavöku eins og í fyrra Blautur dagur í flestum landshlutum Lægðin fyrr á ferðinni Norðan kaldi og snjókoma til fjalla Lægðardrag á leiðinni Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Krapi og hálkublettir víða Skafið og saltað Engar viðvaranir Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Sjá meira