Gamblað með göng og líf lögð undir Eyjólfur Þorkelsson skrifar 24. mars 2026 13:17 Þessi vetur hefur verið þungur fyrir Austfirðinga. Óvenju þungur. Ekki bara hefur óveður ítrekað lokað vegum, heldur hefur Innviðaráðherra þyngt róðurinn enn frekar. Það væri óþarfi að eyða frekari orðum en þegar er orðið í óhæfuna sem jarðgangaáætlun er, ef ekki væri um svo alvarlegt heilbrigðismál að ræða. Hér kallar á stórhuga stjórnmálamenn að stíga inn. Hér er um líf og heilsu fólks að tefla. Á Egilsstöðum er öflugasta heilsugæsla Austurlands og þó víðar væri leitað. Í Neskaupstað veitir sjúkradeild HSA fjórðungnum ómetanlega þjónustu. Í gærkvöldi voru þær staðreyndir marklausar því þeir 74 km sem skilja þessar öflugu einingar að gátu vegna vegleysu allt eins verið 700 eða 740. Við þessar aðstæður veikist sjúklingur alvarlega. Aðstæður sem þessar koma upp oft á hverjum vetri. Fyrir guðs mildi veikist fólk sjaldan akkúrat á meðan. Ekki í gær. Í gær þurftu læknar og sjúkralið á Egilsstöðum að leggja eigið öryggi undir til að fara í fylgd björgunarsveitar og Vegagerðar með sjúkling landleiðina til Akureyrar. Eftir tveggja klukkustunda samráð milli heilsugæslu og sjúkrahúss HSA, sjúkraflugs, Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri, þyrlulæknis, Landhelgisgæslu, Vegagerðar, Björgunarsveita og Slökkviliðsins á Akureyri voru valmöguleikarnir tveir: Senda sjúkling heim og taka sénsinn á að líffæraskaði væri ekki óafturkræfur og ástand hans myndi ekki versna, eða brjótast í brjáluðu veðri í fleiri klukkutíma yfir fjöllin til að geta lagt hann inn á sjúkrahús í öruggar aðstæður. Hvorugur kosturinn var góður. Báðir hættulegir. Við þessar aðstæður lögðu læknir, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk eigin heilsu og öryggi að veði til að koma sjúklingi í skjól. Ég er þakklátur fyrir að vinna með hetjum af þeirra kaliberi. En þetta er ekki boðlegt! Ekki fyrir viðbragðsaðila, ekki fyrir Austfirðinga sem þiggja þjónustu HSA og ekki fyrir okkur sem verðum að skipuleggja þá þjónustu út frá þeirri staðreynd að svona lagað gerist. Endurtekið. Þetta er ekki boðlegt því þetta þarf ekki að vera svona. Við þurfum að tryggja greiðar leiðir milli þjónustumiðjunnar á Egilsstöðum og sjúkrahússins í Neskaupstað, og milli sjúkrahússins í Neskaupstað og flugvallarins á Egilsstöðum. Þetta er nauðsyn og við getum byrjað strax. Fjarðarheiðargöng eru tilbúin til útboðs. Í beinu framhaldi þarf að grafa Mjóafjarðargöng til Neskaupstaðar. Þannig tryggjum við þjónustu sjúkrahússins fyrir Austfirðinga og öryggi vegfarenda. En þá verður að grafa göngin í þessari röð. Annað er fásinna. Fyrir fjórðung sem leggur jafn mikið í tekjur til ríkissjóðs er annað móðgun. Fyrir ríkisstjórn sem situr á grundvelli loforða um að laga heilbrigðiskerfið og samgöngur er annað ekki trúverðugt. Höfundur er framkvæmdastjóri lækninga við Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Byggðamál Heilbrigðisstofnun Austurlands Múlaþing Fjarðabyggð Samgöngur Eyjólfur Þorkelsson Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Lögfræði er engin eðlisfræði – fullveldi er ekki þyngdarkraftur Bergur Hauksson skrifar Skoðun Mamma ég lofa Lára G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Sjá meira
Þessi vetur hefur verið þungur fyrir Austfirðinga. Óvenju þungur. Ekki bara hefur óveður ítrekað lokað vegum, heldur hefur Innviðaráðherra þyngt róðurinn enn frekar. Það væri óþarfi að eyða frekari orðum en þegar er orðið í óhæfuna sem jarðgangaáætlun er, ef ekki væri um svo alvarlegt heilbrigðismál að ræða. Hér kallar á stórhuga stjórnmálamenn að stíga inn. Hér er um líf og heilsu fólks að tefla. Á Egilsstöðum er öflugasta heilsugæsla Austurlands og þó víðar væri leitað. Í Neskaupstað veitir sjúkradeild HSA fjórðungnum ómetanlega þjónustu. Í gærkvöldi voru þær staðreyndir marklausar því þeir 74 km sem skilja þessar öflugu einingar að gátu vegna vegleysu allt eins verið 700 eða 740. Við þessar aðstæður veikist sjúklingur alvarlega. Aðstæður sem þessar koma upp oft á hverjum vetri. Fyrir guðs mildi veikist fólk sjaldan akkúrat á meðan. Ekki í gær. Í gær þurftu læknar og sjúkralið á Egilsstöðum að leggja eigið öryggi undir til að fara í fylgd björgunarsveitar og Vegagerðar með sjúkling landleiðina til Akureyrar. Eftir tveggja klukkustunda samráð milli heilsugæslu og sjúkrahúss HSA, sjúkraflugs, Landspítala, Sjúkrahússins á Akureyri, þyrlulæknis, Landhelgisgæslu, Vegagerðar, Björgunarsveita og Slökkviliðsins á Akureyri voru valmöguleikarnir tveir: Senda sjúkling heim og taka sénsinn á að líffæraskaði væri ekki óafturkræfur og ástand hans myndi ekki versna, eða brjótast í brjáluðu veðri í fleiri klukkutíma yfir fjöllin til að geta lagt hann inn á sjúkrahús í öruggar aðstæður. Hvorugur kosturinn var góður. Báðir hættulegir. Við þessar aðstæður lögðu læknir, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitarfólk eigin heilsu og öryggi að veði til að koma sjúklingi í skjól. Ég er þakklátur fyrir að vinna með hetjum af þeirra kaliberi. En þetta er ekki boðlegt! Ekki fyrir viðbragðsaðila, ekki fyrir Austfirðinga sem þiggja þjónustu HSA og ekki fyrir okkur sem verðum að skipuleggja þá þjónustu út frá þeirri staðreynd að svona lagað gerist. Endurtekið. Þetta er ekki boðlegt því þetta þarf ekki að vera svona. Við þurfum að tryggja greiðar leiðir milli þjónustumiðjunnar á Egilsstöðum og sjúkrahússins í Neskaupstað, og milli sjúkrahússins í Neskaupstað og flugvallarins á Egilsstöðum. Þetta er nauðsyn og við getum byrjað strax. Fjarðarheiðargöng eru tilbúin til útboðs. Í beinu framhaldi þarf að grafa Mjóafjarðargöng til Neskaupstaðar. Þannig tryggjum við þjónustu sjúkrahússins fyrir Austfirðinga og öryggi vegfarenda. En þá verður að grafa göngin í þessari röð. Annað er fásinna. Fyrir fjórðung sem leggur jafn mikið í tekjur til ríkissjóðs er annað móðgun. Fyrir ríkisstjórn sem situr á grundvelli loforða um að laga heilbrigðiskerfið og samgöngur er annað ekki trúverðugt. Höfundur er framkvæmdastjóri lækninga við Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA).
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun