Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Atli Ísleifsson skrifar 24. mars 2026 07:16 Gular viðvaranir vegna veðurs eru enn í gildi á hluta landsins. Vísir/Vilhelm Lægðin sem olli illviðrinu í gær er nú fyrir austan land og fjarlægist smám saman. Veðurspáin gerir ráð fyrir norðan- og norðaustanátt í dag, víða átta til fimmtán metrar á sekúndu og él, en heldur hvassara og snjókoma austanlands fram eftir morgni.
Á vef Veðurstofunnar segir að það muni stytta upp við Faxaflóa eftir hádegi. Frost verður á bilinu núll til sjö stig. Gular viðvaranir vegna veðurs eru enn í gildi á hluta landsins eða frá Vestfjörðum og norður fyrir allt að Austfjörðum. Viðvaranir falla svo úr gildi á næsta klukkutímunum en þó ekki fyrr en á hádegi á Austfjörðum. Óvissustig vegna snjóflóðahættu er svo í gildi á Austfjörðum og hættustig á Seyðisfirði. Þar var í gær ákveðið að rýma fimm rýmingarreiti fyrir utan þéttbýlið í bænum. Í tilkynningu frá Vegagerðinni er bent á að vegir séu lokaðir víða um land, og er fólk beðið um að athuga ástand þeirra áður en lagt er af stað. Á Suðvesturlandinu og höfuðborgarsvæðinu er þó allt opið en Hálka, hálkublettir eða snjóþekja á flestum leiðum. Vegir um Holtavörðuheiði og Bröttubrekku voru lokaðir en hafa verið opnaðir á ný. Hálka eða snjóþekja er á flestum leiðum. Á Vestfjörðum er Steingrímsfjarðarheiðin síðan ófær sem stendur og sömu sögu er að segja af Þröskuldum. Spákort fyrir klukkan 14.Veðurstofan „Fremur hæg breytileg átt á morgun, en norðvestan 10-18 m/s austantil. Dálítil él norðaustanlands, annars bjart með köflum, en suðaustan strekkingur og líkur á éljum við vesturströndina undir kvöld. Herðir á frosti.Aðfaranótt fimmtudags nálgast djúp lægð úr suðvestri og á fimmtudagsmorgun er útlit fyrir suðaustan storm með talsverðri snjókomu eða slyddu sunnan- og vestanlands. Eftir hádegi ætti veður að fara hratt skánandi á þeim slóðum, en á Norðaustur- og Austurlandi má búast við suðaustan hríð fram undir kvöld,“ segir á vef Veðurstofunnar. Veðurhorfur á landinu næstu daga Á miðvikudag: Breytileg átt 3-10 m/s, en norðvestan 10-15 austantil. Dálítil él norðaustanlands, og einnig við vesturströndina eftir hádegi, annars þurrt að mestu. Frost víða 2 til 10 stig. Á fimmtudag: Suðaustan 15-25 m/s og snjókoma eða slydda, hvassast og talsverð ofankoma suðvestan- og vestantil. Hlýnar í veðri. Dregur talsvert úr vindi og úrkomu sunnan- og vestanlands eftir hádegi, sunnan 8-15 og slydduél síðdegis, en suðaustan hvassviðri og snjókoma á Norðaustur- og Austurlandi fram á kvöld. Á föstudag: Gengur í norðan 13-20 á vestanverðu landinu með snjókomu, en þurrt að kalla suðvestanlands. Hægari vindur og úrkomumuminna á Norðaustur- og Austurlandi fram undir kvöld. Hiti nálægt frostmarki. Á laugardag: Minnkandi norðvestanátt, styttir upp og kólnar. Vaxandi suðaustanátt sunnan- og vestanlands síðdegis með snjókomu eða slyddu. Á sunnudag: Suðvestanátt og él, en slydda austanlands fyrri part dags. Hiti um eða yfir frostmarki. Á mánudag: Suðvestan- og vestanátt og él, en þurrt að mestu um landið austanvert. Heldur kólnandi. Fréttin hefur verið uppfærð eftir að vegir um Holtavörðuheiði og Bröttubrekku voru opnaðir á ný um klukkan átta.
Veður Færð á vegum Mest lesið Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Fleiri fréttir Varar við ferðum milli Hafnar og Djúpavogs Gul skriðuviðvörun á Ströndum og Vestfjörðum Áfram blautt og hvasst með gulum viðvörunum Gæti komið til lokana með stuttum fyrirvara Stormur með talsverðri rigningu síðdegis í dag Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Talsverð rigning næstu daga Fylgstu með lægðinni í beinni Viðvaranir á viðvaranir ofan Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Skúrir og rigning en léttir til er líður á daginn Suðaustan stormur og gul viðvörun Milt og blautt í dag Allmikil lægð þokast meðfram landinu Mikil rigning og allhvass vindur Frost í nótt en hlýnar yfir daginn Næturfrost víða Slydda og snjókoma til fjalla Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Lægð sendir regnsvæði sitt yfir landið Vara við stormi á norðaustanverðu landinu Auknar líkur á skriðuföllum á Suðausturlandi og Austfjörðum Gular viðvaranir í nótt vegna rigningar Áfram spáð talsverðri úrkomu norðvestanlands Enn hætta á skriðum Líkur á slyddu og snjókomu á Vestfjörðum Viðvaranir fyrir vestan í allan dag Rigning og vindur Gular viðvaranir á morgun Rigning, rigning, rigning Sjá meira