Líklegt að Rasmussen verði í oddastöðu eftir kosningar Kjartan Kjartansson skrifar 23. mars 2026 13:32 Mette Frederiksen, leiðtogi jafnarðarmanna, (t.v.) og Lars Løkke Rasmussen, leiðtogi Moderaterna, (t.h.) hafa staðið saman í slag við Bandaríkjastjórn vegna Grænlands að undanförnu. Þau keppast nú um hylli kjósenda í kosningum sem fara fram á morgun. Vísir/EPA Litlu munar á fylgi stóru kosningablokkanna tveggja í skoðanakönnunum fyrir þingkosningar í Danmörku á morgun. Útlit er fyrir Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra í sitjandi ríkisstjórn, verði í oddastöðu eftir kosningar.
Danir ganga að kjörboðinu í þingkosningum á morgun. Mette Frederiksen, forsætisráðherra, boðaði óvænt til kosninganna fyrir um mánuði. Flokkur hennar hafði þá átti verulega undir högg að sækja og komið illa út úr sveitarstjórnarkosningumJafnaðarmannaflokkur Frederiksen gæti tapað stórum hluta þingsæta sinna verði úrslit kosninganna í líkingu við skoðanakannanir. Þó að flokkurinn mælist stærstur með um fimmtungsfylgi gæti hann tapað sextán þingsætum af fimmtíu. Samstarfsflokkar jafnaðarmanna í ríkisstjórn horfa líklega einnig fram á glötuð þingsæti. Venstre gæti tapað átta mönnum af 23 og Moderaterna, flokkur Rasmussen, fjórum af sextán. Þjóðernissinnar hástökkvararnir Hvorki rauða blokk vinstriflokkanna né bláa blokk borgaralegu flokkanna næði þingmeirihluta miðað við stöðu skoðanakannana. Frjálslynda bandalagið, undir stjórn Alex Vanopslagh sem gekkst við kókaínneyslu í síðustu viku, mælist stærstur hægra megin, með ellefu prósent fylgi. Flokkurinn gæti bætt við sig fimm þingmönnum miðað við það. Þá er útlit fyrir að vinstriumhverfisflokkurinn Sósíalíski þjóðarflokkurinn verði næststærstur á þingi og bæti við sig sjö þingmönnum. Hástökkvarinn virðist ætla að verða þjóðernisflokkurinn Danski þjóðarflokkurinn sem gæti bætt við sig tólf mönnum. Hann á nú fimm þingmenn. Ætlar ekki að láta draga sig í dilka Það er hins vegar Rasmussen, utanríkisráðherra í ríkisstjórn Frederiksen og fyrrverandi forsætisráðherra Danmerkur, sem gæti verið með pálmann í höndunum eftir að atkvæði hafa verið talin. Hann gæti verið í aðstöðu til þess að velja hvort hann vilji halda Frederiksen áfram við völd í áframhaldandi miðjustjórn eða halla sér til hægri. Frederiksen varaði við seinni möguleikanum í kosningabaráttu sinni. Ákveði Rasmussen að styðja Troels Lund Poulsen, leiðtoga Venstre og forsætisráðherraefni bláu blokkarinnar, fái Danir að líkindum hægri stjórn yfir sig. Frá sjónvrapskappræðum leiðtoga dönsku stjórnmálaflokkanna. Frá vinstri Inger Støjberg. leiðtogi Danmerkurdemókrata, Frederiksen forsætisráðherra, Troels Lund Poulsen, leiðtogi Vestre og Morten Messerschmidt, leiðtogi Danska þjóðarflokksins.Vísir/EPA Evrópska blaðið Politico segir að Rasmussen hugnist ekki hugmyndir Frederiksen um að taka frekar upp samstarf til vinstri eftir kosningar. Hann vilji miðjustjórn áfram. Hann hefur aftur á móti einnig neitað því að hann ætli að leiða hægri blokkina til valda. „Ég læt ekki draga mig í dilka. Ég er á miðjunni, staðfastur, jafnvel þegar vindar blása,“ skrifaði Rasmussen á samfélagsmiðli í síðustu viku. Á ýmsu hefur gengið í dönskum stjórnmálum að undanförnu og mikið hefur mætt á Frederiksen og Rasmussen og stjórn þeirra. Þau hafa staðið sameinuð gegn ásækni Bandaríkjaforseta í Grænland og átt í nánu samstarfi við evrópska bandamenn undanfarna mánuði.
Danmörk Þingkosningar í Danmörku Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Innlent „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Fleiri fréttir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi Sjá meira