Ekið yfir unga stúlku á golfbíl á PGA-móti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. mars 2026 12:30 Blessunarlega slapp stúlkan sem varð undir golfbílnum á Valspar-meistaramótinu vel. Ungur áhorfandi lenti í slysi á Valspar-meistaramótinu á PGA-mótaröðinni í golfi um helgina. Ekið var yfir viðkomandi á golfbíl.
Gera þurfti hlé á þriðja keppnisdegi Valspar-mótsins. Á 15. holu Copperhead-vallarins í Flórída var ekið yfir unga stelpu á golfbíl með þeim afleiðingum að hún festist undir honum. Brooks Koepka var staddur á 15. holunni þegar slysið varð. Hann fór strax og hugaði að stúlkunni. Koepka var sleginn er hann ræddi við fjölmiðla um atvikið. „Mér fannst þetta bara hræðilegt fyrir hana. Ég held að hún heiti Shay,“ sagði Koepka. Hann kvaðst feginn þegar honum var tjáð að stúlkan hefði ekki slasast. „Guði sé lof. Það er það eina sem skiptir máli. Ég veit að hún er líklega svolítið hrædd og ég fann til með henni á þessari stundu. Þetta er óheppilegt, þetta hefði ekki átt að gerast en aðalatriðið er að það er í lagi með hana,“ sagði Koepka sem endaði í 18. sæti á mótinu. Englendingurinn Matt Fitzpatrick hrósaði sigri á Valspar-mótinu en hann lék á samtals ellefu höggum undir pari.
Golf Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Fleiri fréttir Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Eva bætti hvert metið á fætur öðru Frábær árangur Evu sem sló met í Bandaríkjunum Rahm segist vilja rifta við LIV Sjá meira