Handbolti

HK flaug upp í Olís-deildina

Sindri Sverrisson skrifar
HK fagnaði deildarmeistaratitlinum, og sæti í Olís-deildinni, vel í kvöld.
HK fagnaði deildarmeistaratitlinum, og sæti í Olís-deildinni, vel í kvöld. VÍSIR/VILHELM

HK-konur vissu fyrir leik sinn við Fjölni í Grafarvogi í kvöld að sigur kæmi þeim upp í Olís-deildina í handbolta. Þær létu tilefnið ekki trufla sig, unnu stórsigur og eru því komnar í deild þeirra bestu.

HK hefur spilað síðustu þrjár leiktíðir í Grill 66-deildinni, eftir fallið úr Olís-deildinni 2023, og varð að vinna Fjölni í lokaumferðinni í kvöld til að tryggja sér 1. sæti og sleppa við umspil.

Staðan í hálfleik í Kórnum í kvöld var 14-12 fyrir HK en heimakonur stungu svo af í seinni hálfleiknum og höfðu náð átta marka forskoti þegar korter var eftir. Þær bættu svo enn frekar í og tryggðu sér deildarmeistaratitilinn með sannfærandi hætti. Lokatölur 31-20.

Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir var markahæst hjá HK með sex mörk og þær Tinna Ósk Gunnarsdóttir og Inga Fanney Hauksdóttir skoruðu fjögur mörk hvor, en alls skoruðu tólf leikmenn fyrir liðið í kvöld.

Gróttukonur unnu á sama tíma risasigur gegn varaliði Fram, 42-15, en þurftu að treysta á tap hjá HK til að ná 1. sætinu. Grótta endaði með 36 stig, tveimur stigum á eftir HK, og þarf nú að fara í umspil með Víkingi, FH og svo Stjörnunni sem endaði í næstneðsta sæti Olís-deildarinnar. Eitt þessara fjögurra liða leikur í Olís-deildinni næsta vetur.

Tíu marka sigur Fram fyrir úrslitakeppnina

Í Olís-deildinni vann Fram tíu marka sigur gegn KA/Þór, 35-25, í lokaleik liðanna í deildarkeppninni. Úrslitin breyta engu um það að Fram endar í 5. sæti og KA/Þór í 6. sæti, og mun Fram spila við ÍR í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en KA/Þór við Hauka.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×