Hlustað á Bítlakynslóðina Gunnar Salvarsson skrifar 22. mars 2026 12:00 Fyrir hönd Bítlakynslóðarinnar hef ég hvatt stjórnvöld í nokkrum greinum hér á Vísi til þess að bregðast okkur ekki (Don’t Let Me Down). Forsætisráðherra hefur nú svarað kallinu og fullyrt að flokkur hennar vilji leiða okkur (I Wanna Hold Your Hand) inn í lokakafla æviskeiðsins.Öldrun þessarar kynslóðar er líklega stærsta samfélagslega áskorun sem þjóðin stendur frammi fyrir. Þótt umræðan um þetta risaverkefni hafi verið næsta lítil er fagnaðarefni að heyra forsætisráðherra segja í gær að flokkur hennar vilji stórefla þjónustu við eldra fólk í heimahúsum. Sú yfirlýsing kemur í beinu framhaldi af tilkynningu ráðherra um mikla fjölgun hjúkrunarrýma á næstu árum þar sem markmiðið er að útrýma biðlistum.Átakið í þágu aldraðra er eitt af þremur samvinnuverkefnum ríkis og sveitarfélaga sem flokkur forsætisráðherra vill ráðast í undir yfirskriftinni Tökum ábyrgð hvert á öðru.Lykilverkefni, sagði hún.Það á eftir að skýrast hvað felst í því að stórefla þjónustu við eldra fólk í heimahúsum, en það er jákvætt og mikilvægt að viljinn er fyrir hendi. Stefna stjórnvalda um árabil hefur verið skýr: að eldri borgarar geti lifað sjálfstæðu og öruggu lífi heima hjá sér eins lengi og kostur er. Til þess þarf að byggja upp þjónustu við hæfi. Á það hefur skort.Reynsla mín af þjónustuíbúðum er sú að kerfið gengur einfaldlega ekki upp án aðkomu aðstandenda. Þar er vissulega boðið upp á mötuneyti, félagsstarf og innlit. En þegar kemur að daglegri umönnun – fylgd í matsal, þvotti, þrifum og einföldum atriðum sem skipta sköpum í lífi fólks – lendir ábyrgðin í reynd á aðstandendum.Þegar stjúpi minn á tíræðisaldri var sendur heim af sjúkrahúsi fyrir rúmu ári sagði öldrunarlæknirinn við hann: „Þú gerir þér grein fyrir því að þú gætir dáið einn heima hjá þér?“ Þetta var sagt af mildi og hlýju, en er þetta skilaboðin sem stjórnvöld og samfélagið vilja senda elstu kynslóðinni?Staðan í dag er sú að þjónusta við aldraða er dreifð milli margra kerfa og ábyrgðin óskýr. Sveitarfélög á Íslandi eru mörg og flest þeirra lítil. Þau hafa hvorki burði né mannafla til að byggja upp þá samþættu þjónustu sem þarf til að styðja fólk í þjónustuíbúðum og heima. Á höfuðborgarsvæðinu búa nálægt 250 þúsund manns, en þjónustan er samt dreifð milli margra sveitarfélaga með mismunandi áherslur og getu.Við stöndum einnig frammi fyrir vaxandi manneklu í umönnunarstörfum. Hlutfall eldri borgara eykst hratt á sama tíma og fólki á vinnualdri fjölgar hægar. Það þýðir einfaldlega að færri hendur verða til að sinna fleiri einstaklingum. Þessi staðreynd gerir það enn brýnna að skipuleggja þjónustuna betur og nýta mannaflann skynsamlega.Ef stjórnvöld geta sett fram skýra áætlun um uppbyggingu hjúkrunarrýma, þá hlýtur að vera hægt að gera hið sama fyrir þjónustuíbúðir og þann stuðning sem þarf í daglegu lífi fólks. Setja markmið. Skilgreina þjónustustig. Skýra ábyrgð.Á dögunum var kynnt skýrsla starfshóps um börn með fíknivanda. Þar er lögð áhersla á að tryggja samþætta og árangursríka þjónustu, skýra ábyrgð milli kerfa og styrkja samfellu í þjónustu og eftirfylgd. Það hljómar kunnuglega, því þetta er nákvæmlega sú nálgun sem vantar í þjónustu við aldraða.Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Tónlist Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar