Víkingar unnu titil og tvo leiki sama dag Sindri Sverrisson skrifar 21. mars 2026 22:20 Gylfi Þór Sigurðsson skoraði lokamark Víkinga í sigrunum tveimur í dag. vísir/Diego Íslandsmeistarar Víkings sýndu og sönnuðu hve stóran og góðan leikmannahóp þeir hafa með því að vinna tvo leiki í dag og tryggja sér um leið sigur í Bose-bikarnum.
Nokkuð hefur verið ritað og rætt um stærðina á leikmannahópi Víkinga sem var undirstrikuð í dag þegar þeir gátu teflt fram tveimur firnasterkum liðum, í sigrum á FH og Stjörnunni. Víkingar byrjuðu á að spila æfingaleik við FH í hádeginu og í því Víkingsliði voru menn á borð við Daníel Hafsteinsson, Erling Agnarsson og framherjann Elías Má Ómarsson sem sneri heim til Íslands úr atvinnumennsku í vetur. Elías sýndi hvað hann hefur fram að færa með tveimur stórgóðum mörkum auk þess sem að hinn 16 ára gamli Þorri Ingólfsson skoraði eitt, eftir sláarskot Elíasar. Þorri lagði auk þess upp seinna mark Elíasar en mörkin má sjá hér að neðan, á X-síðu Livey. Víkingur og FH mættust í æfingaleik í hádeginu þar sem Elías Már Ómarsson skoraði tvö og Þorri Ingólfsson eitt. pic.twitter.com/o9HvaBVQMx— Livey (@liveyevents) March 21, 2026 Í kvöld lék Víkingur svo úrslitaleik gegn Stjörnunni í Bose-bikarnum, innandyra í Miðgarði í Garðabæ, þar sem Víkingar unnu einnig, í þetta sinn 3-1. Örvar Eggertsson kom Stjörnunni reyndar yfir í leiknum en Óskar Borgþórsson jafnaði metin á 36. mínútu og Valdimar Þór Ingimundarson kom Víkingi yfir snemma í seinni hálfleik. Gylfi Þór Sigurðsson, sem er á leið með íslenska landsliðinu í tvo vináttulandsleiki í Kanada, innsiglaði svo sigurinn með góðu skoti af vítateigslínunni eftir afar þunga sókn Íslandsmeistaranna. Stjarnan og Víkingur mættust í kvöld í úrslitum Bose bikarsins og Víkingar þar að spila sinn annan leik í dag. Staðan var 1-1 í hálfleik en í síðari hálfleik sigu Víkingar fram úr og lokatölur 1-3 fyrir gestunum. pic.twitter.com/T0I825NZ4m— Livey (@liveyevents) March 21, 2026
Víkingur Reykjavík Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira