Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Rakel Sveinsdóttir skrifar 21. mars 2026 10:02 Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, segist meta rútínu betur í dag en áður. Því eitt sinn fannst henni hún rútína vera algjört fangelsi og óspennandi. Guðbjörg er hæg í gang á morgnana og ekki mikil morgunmanneskja. Vísir/Vilhelm Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, er snúsari og hæg í gang á morgnana en mjög góð í að segja brandara. Oft sofnar hún með dóttur sinni rétt fyrir klukkan tíu á kvöldin, en í þau skipti sem hún nær að vaka fram yfir þann tíma getur allt gerst: Kvöldin eru besti tíminn!
Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni. Hvenær vaknar þú á morgnana? „Ég vakna 07.07 og snúsa einu sinni. Ég var að kaupa mér snjallúr þannig að þessa dagana er ég spennt að vakna og sjá „sleep score“ á úrinu eftir nóttina. Hef hæst komist í 95 og lægsta var 61, þá var útvarpsviðtal eldsnemma um morguninn að kynna nýja vernd hjá okkur í Verði. Ég kann alltaf betur og betur að meta rútínu með aldrinum. Áður fannst mér hún algjört fangelsi, eins og allt væri ákveðið fyrir fram og ekkert spennandi eða óvænt gæti gerst. En ég er löngu búin að átta mig á því að árangur og raunverulegar breytingar nást ekki öðruvísi en með rútínu og miklum aga.“ Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana? „Ég er hæg í gang á morgnanna og ekki mikil morgunmanneskja. Yfirleitt byrja ég á að græja mig fyrir daginn áður en ég vek dóttur mína sem er 9 ára. Við hefjumst handa við að undirbúa okkur fyrir daginn í rólegum heitunum og spjöllum um það sem er fram undan. En almennt eru morgnarnir okkar þó frekar viðburðalitlir.“ Á skalanum 0-10, hversu góð ertu í að segja brandara? „Ég gef mér 8,7 í einkunn. Það verður auðvitað að vera gaman, annars er svo leiðinlegt.“ Guðbjörg Heiða er yfirleitt með eitt eða tvö verkefni sem eru algjör forgangsverkefni en almennt finnst henni best og skemmtilegast að vinna með öðrum. Þar sem hópurinn ákveður sameiginlega forgangsröðun verkefna og hvernig ætlunin er að vinna þau.Vísir/Vilhelm Í hvaða verkefni ertu að vinna helst þessa dagana? „Síðustu dagar hafa farið í að kynna nýja vernd, stuðningsleyfi, sem er ætluð fyrirtækjum til að auðvelda þeim að styðja starfsfólk sitt sem er þolendur ofbeldis í nánum samböndum. Við erum líka í fræðsluátaki í samvinnu við Bjarkarhlíð um hvernig megi vera vakandi fyrir merkjum sem benda til að starfsmaður gæti verið að verða fyrir ofbeldi í nánu sambandi og hvernig sé best að bregðast við. En vinnustaðurinn er oft eini snertiflötur þolanda ofbeldis í nánu sambandi fyrir utan heimilið og því getur stuðningur þar skipt sköpum. Við héldum fyrsta fræðslufundinn í vikunni og það var ótrúlega gleðilegt að sjá hversu mörg mættu, en það er greinilegt að vinnustaðir vilja fræðast um hvernig þeir geta stutt mannauð sinn í þessum aðstæðum betur. Við viljum vera til staðar og erum markvisst að horfa til þess hvað skiptir viðskiptavini okkar máli og hefur samfélagslegan ávinning. Í fyrra bættum við neyðaraðstoð fyrir þolendur ofbeldis við heimilistryggingarnar okkar sem vakti mikla athygli enda í fyrsta sinn á Íslandi sem tryggingafélag gerir það. Þetta er bæði eitthvað sem við bættum við tryggingarnar án viðbótarkostnaðar fyrir viðskiptavini.“ Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? „Ég skipulegg mig með teyminu mínu en mér finnst alltaf langbest að vinna með öðrum. Við setjumst saman, forgangsröðum verkefnum og ákveðum hvernig við ætlum að vinna þau. Ég hef mjög gaman af góðum samtölum og þrífst vel þegar það er nóg að gera. Yfirleitt er ég með eitt eða tvö verkefni sem eru algjör forgangsverkefni og passa sérstaklega vel upp á að þau séu í réttum farvegi.“ Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? „Annaðhvort sofna ég með dóttur minni rétt fyrir klukkan tíu en ef ég næ að halda mér vakandi í gegnum það ferli þá getur allt gerst. Kvöldin eru besti tíminn. Þá er hægt að lesa og hlusta á bækur en það er eiginlega ótrúlegt líka hvað ég verð vitur eftir klukkan tíu, ólíkt því hvernig ég er eldsnemma á morgnana.“
Tengdar fréttir „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður. 14. mars 2026 10:00 Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, átti það til að mála sig í bílnum á leiðinni í vinnuna en er nú farin að vera duglegri að hafa sig til heima áður en hún leggur af stað. Sylvía gefur sjálfri sér 7-8 í einkunn fyrir handlagnina heima fyrir. 7. mars 2026 10:02 „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi. 28. febrúar 2026 10:02 Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Elínu Tinnu Logadóttur, framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi, finnst voða notalegt að fara í bað áður en restin af heimilisfólkinu vaknar á morgnana. Þá þegar búin að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins. 21. febrúar 2026 10:00 Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana. 14. febrúar 2026 10:00 Mest lesið Ekkert til í því að enginn rjómi sé í Rjómaísnum Neytendur Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Atvinnulíf Bankarnir byrjaðir að hækka vexti Neytendur Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Neytendur Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun Viðskipti innlent Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Neytendur Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Samstarf Landsbankinn greiðir 34,9 milljarða í arð til hluthafa Viðskipti innlent Hætta að taka við rúmfreku rusli á tveimur stöðvum Neytendur Fleiri fréttir Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu Réttu tækifærin opnuðust þegar sumarstarfsmaður var ráðinn sem sendill „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? „Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Þegar óvissa vegna breytinga vofir yfir í langan tíma Atvinnumennskan í útlöndum: Tekjur, tækifæri og margir hattar á höfði Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Í röngu starfi og vansæl Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin „Það veit enginn hvert þessar breytingar eru að leiða okkur“ „Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“ „Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Slangur, menning og jafnvel húmor getur skolast illa á milli kynslóða Óþolandi spjallmenni: „Ég bið alltaf um manneskju“ Magnús er að slá í gegn, mest lesinn og getur allt Snjallvinna er ekki það sama og fjarvinna eða hybrid Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Samfélagsmiðlar á vinnutíma: Hversu oft og hvers vegna Vann hjá Amazon, með áhyggjur af Trump, reynslu af Rússum en kominn heim Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Glæpamenn í fjarvinnu Svartir sauðir: „Stjórnendur þurfa að hafa kjarkinn til að ræða fjarvistir vegna veikinda“ „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Þessir þrír drepa alla góða fundi Sjá meira
„Annar er létt geggjaður og skemmtilegur og hinn alveg grjótharður“ Brynjar Valsteinsson, framkvæmdastjóri Gosfélagsins, segir morgnana frekar einfalda rútínu en viðurkennir að fara of seint að sofa. Þá kalli á að horfa á íþróttir eða ókláraðan þátt. Hetjur úr gömlum bíómyndum eru annars vegar einn grjótharður og hins vegar einn létt geggjaður. 14. mars 2026 10:00
Forstjóri Nova: Ekkert betra en brakandi hrein rúmföt eftir gufuna Sylvía Kristín Ólafsdóttir, forstjóri Nova, átti það til að mála sig í bílnum á leiðinni í vinnuna en er nú farin að vera duglegri að hafa sig til heima áður en hún leggur af stað. Sylvía gefur sjálfri sér 7-8 í einkunn fyrir handlagnina heima fyrir. 7. mars 2026 10:02
„Algjörir B-menn og kreistum hverja mínútu sem okkur gefst“ Ásmundi Atlasyni, markaðsstjóra Dominos, fannst hann nettur á fermingardaginn, enda í sínum fyrstu jakkafötum. Þessa dagana snýst allt um nýfædda soninn og nú er spurning hvort sá verði jafn mikill B-maður og stóri bróðir og pabbi. 28. febrúar 2026 10:02
Gefur fermingamyndinni 10 í einkunn Elínu Tinnu Logadóttur, framkvæmdastjóra 66°Norður á Íslandi, finnst voða notalegt að fara í bað áður en restin af heimilisfólkinu vaknar á morgnana. Þá þegar búin að renna í gegnum helstu tölur gærdagsins. 21. febrúar 2026 10:00
Draumurinn um hvítu jakkafötin og Ferrari á bílaplaninu Jóhannes Helgi Guðjónsson, forstjóri Wise, býr með B-týpum og segir því að dagarnir hefjist hjá sér með skipulagðri keðjuvakningu, þar sem hann byrjar á því að vekja konuna með kaffi, hundinn með morgunmat og síðan er það að vekja krakkana. 14. febrúar 2026 10:00