Vantraustið og hinn venjulegi Íslendingur – hverjum á ég að trúa? Sigurður Árni Reynisson skrifar 21. mars 2026 09:32 Það er eitthvað undarlegt við að sitja inni í hlýju rými og horfa út um gluggann á veðrið breytast. Vindurinn eykst, rigningin skellur á, svo birtir aftur til eins og ekkert hafi í skorist, og allt þetta gerist á meðan ég stend kyrr og fylgist með. Ég veit að þetta mun snerta mig um leið og ég stíg út, en á meðan er eins og ég sé áhorfandi að einhverju sem ég ræð ekki við. Umræðan um Evrópusambandið er orðin svolítið svona. Ég sit, hlusta, les og reyni að átta mig, og á meðan breytist tónninn, röksemdirnar, áherslurnar, allt í kringum mig, án þess að ég nái almennilega að festa mig í einhverri einni niðurstöðu. Ein rödd segir að lausnin sé augljós, að við þurfum stöðugleika, sterkari gjaldmiðil og minna af þessum sveiflum sem hafa mótað líf okkar svo lengi. Hún talar um lægri vexti, fyrirsjáanlegra umhverfi og raunverulegan möguleika fyrir venjulegt fólk að skipuleggja líf sitt án þess að vera stöðugt að bregðast við næsta höggi. Svo kemur önnur rödd, jafn örugg og sannfærð, sem segir að hættan sé augljós, að við séum að færa vald úr landi, að við séum að gefa frá okkur eitthvað sem hefur haldið utan um okkur sem þjóð, og að þegar það sé farið þá fáum við það ekki aftur. Báðar þessar raddir hljóma sannfærandi og byggja á einhverjum raunveruleika, en samt sit ég eftir með tilfinningu sem erfitt er að hrista af sér, tilfinningu vantrausts. Ekki vegna þess að mér skorti skilning, heldur einmitt vegna þess að ég sé að myndin sem er dregin upp er ófullkomin: að eitthvað leynist milli línanna og að sannleikurinn er víðari en það sem hvor hlið nær að fanga. Vantraust sem á rætur sínar í reynslu en ekki í meðvitaðri ákvörðun. Ég hef alltof oft séð hvernig flókin mál eru einfölduð niður í setningar sem hljóma vel en segja ekki alla söguna, hvernig tölur eru valdar og settar fram á þann hátt sem styður ákveðna niðurstöðu, og hvernig það sem vantar í umræðuna er stundum jafn mikilvægt og það sem er sagt. Smám saman hætti ég að treysta ekki bara einstökum röddum, heldur umræðunni sjálfri. Ég hlusta, en með fyrirvara. Ég les, en með efasemd. Ég reyni að mynda mér skoðun en finn að eitthvað vantar alltaf upp á, eins og púsluspil þar sem nokkrir lykilbitar eru týndir. Í umræðunni um Evrópusambandið verður þetta sérstaklega skýrt, því þar mætast tveir heimar sem hvor um sig heldur á hluta af sannleikanum. Annars vegar er talað um stöðugleika, um að vera hluti af stærra myntsvæði þar sem sveiflurnar verða minni og lífið fyrirsjáanlegra. Fyrir venjulegan launþega er þetta ekki abstrakt hugmynd heldur spurning um hvort hægt sé að gera áætlanir, hvort húsnæðislán haldist í jafnvægi og hvort launin haldi raunverulegu verðgildi sínu. Hins vegar er talað um sjálfstæði, um það að ráða eigin auðlindum, eigin reglum og eigin stefnu og um það að missa ekki stjórn á því sem hefur mótað þjóðina bæði efnahagslega og menningarlega. En inn í þessa umræðu kemur stundum önnur rödd, sem er síður rædd en hefur engu minni áhrif, rödd sem gefur í skyn að ekki sé hægt að treysta þjóðinni til að taka svona stórar ákvarðanir. Hún birtist ekki alltaf beint, heldur í varnaðarorðum, í því að málið sé of flókið, að umræðan sé ekki nægilega þroskuð eða að hætta sé á að fólk taki ákvörðun á röngum forsendum. Og þá vaknar spurning sem ég tel að við þurfum að þora að spyrja: er verið að verja þjóðina, eða er verið að verja eitthvað annað? Stundum sprettur þessi umræða af ábyrgð og varfærni, af ótta við að flókin mál verði einfölduð og ákvarðanir teknar of hratt. En stundum er varúðin klædd í búning ábyrgðar á meðan hún felur í sér annað, ótta við breytingar eða vilja til að halda í stöðu sem gæti raskast. Og á milli þessara tveggja liggur þunn lína sem erfitt er að greina. Því þegar við förum að efast um getu fólksins sjálfs til að taka ákvarðanir, þá erum við ekki lengur bara að ræða Evrópusambandið. Þá erum við farin að snerta kjarna lýðræðisins sjálfs. En svo bætist við eitthvað sem við tölum sjaldnar um, þótt það sé kannski mikilvægast af öllu eða spurningin, fyrir hvern við erum að taka þessa ákvörðun. Það er auðvelt fyrir þann sem er kominn á miðjan aldur, með uppkomin börn og tiltölulega stöðugt umhverfi, að horfa á þetta sem rökræna æfingu, vigtun á kostum og göllum og mat á áhættu. En á sama tíma situr einhver annar á öðrum stað í lífinu, kannski að stíga sín fyrstu skref inn í fullorðinsár, að taka lán, stofna fjölskyldu og reyna að byggja upp eitthvað sem á að endast í áratugi. Fyrir þann einstakling er þetta ekki abstrakt spurning. Þetta er grunnur sem lífið verður byggt á. Og þar breytist umræðan án þess að við tökum endilega eftir því. Hún hættir að snúast um það eitt hvað hentar mér, í dag, í mínu lífi, og færist yfir í eitthvað stærra og þyngra, spurninguna um það hvað við skiljum eftir okkur. Kannski er það einmitt kjarninn í því sem við köllum samfélag, að við reynum að horfa út fyrir okkar eigin líftíma, að taka ákvarðanir sem ná lengra en okkar eigin dagar. Við vitum að við munum ekki sitja í skugganum af öllum þeim trjám sem við plöntum en við gerum það samt, vegna þess að einhver annar mun einhvern daginn njóta þess. Í því ljósi verður spurningin um Evrópusambandið mun flóknari en hún er oft sett fram. Hún snýst ekki lengur bara um stöðugleika eða sjálfstæði hér og nú, heldur um það hvaða jarðveg við erum að undirbúa fyrir komandi kynslóðir. Hvort við séum að leggja grunn að meiri fyrirsjáanleika sem gerir fólki kleift að byggja upp líf sitt án stöðugrar óvissu, eða hvort við veljum að halda í kerfi sem veitir meira sjálfræði en getur jafnframt verið sveiflukennt og ófyrirsjáanlegt. Ekki er hér aðeins um hagfræðilega spurningu að ræða, heldur framtíðarsýn, um það hvernig við viljum að líf þeirra sem á eftir okkur koma mótist. Samhliða þessu þurfum við líka að horfast í augu við sannleika sem er oft óþægilegur. Samfélagið er ekki einsleitt og það er ekki bara samsett af þeim sem upplifa sig sem „venjulegt fólk“. Það inniheldur líka fólk sem hefur meira á milli handanna, meiri áhrif og meiri möguleika að bregðast við breytingum. Börnin þeirra eru hluti af sama samfélagi og börnin okkar, og framtíð þeirra vegur í sömu jöfnu, hvort sem okkur líkar það betur eða verr. Þetta skapar togstreitu sem ekki er hægt að leysa með einföldum slagorðum, því það sem skapar öryggi fyrir einn hóp getur haft allt aðrar afleiðingar fyrir annan. Þess vegna er þessi ákvörðun svo þung. Ekki bara vegna þess að við treystum ekki öllum röddum í umræðunni, heldur vegna þess að við finnum að við erum að reyna að taka ákvörðun sem nær langt út fyrir okkur sjálf. Við erum ekki bara að meta okkar eigin líf, heldur líf þeirra sem koma á eftir okkur, og jafnvel þeirra sem lifa við allt aðrar aðstæður en við sjálf. Í slíkri stöðu eru engin einföld svör og kannski er það eina heiðarlega viðbragðið, að viðurkenna það að við séum ekki að velja á milli góðs og ills, heldur á milli tveggja ófullkominna leiða sem hvor um sig ber með sér afleiðingar sem við munum aldrei skilja til fulls. Og kannski er það einmitt þar sem ábyrgðin byrjar, ekki í því að finna hið fullkomna svar, heldur í því að horfast í augu við að það er ekki til. Að velja, ekki af því að við sjáum alla leið, heldur af því að við vitum að það sem við veljum mun halda áfram að móta heiminn löngu eftir að við erum farin. Því á endanum er spurningin ekki hvaða leið er auðveldust fyrir okkur sem stöndum hér í dag, heldur hvaða heim við skiljum eftir þegar við erum farin og hvort þeir sem taka við muni finna fyrir skugga sem við sköpuðum eða standa berskjaldaðir í vindi sem við ákváðum að hundsa. Höfundur er mannvinur og kennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður Árni Reynisson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo Skoðun Við erum orðin Afríka: Hvernig íslenska elítan rændi þjóðinni Sigurður Sigurðsson Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Staðreyndir og fræðsla um flugmannsstarfið Matthías Arngrímsson Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver borgar þegar samningurinn er svikinn? Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun ESB aðild er óskynsamleg frá efnahagslegu sjónarmiði Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Er kominn tími á nýtt norrænt leiðtogahlutverk? Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Þegar fyrirmyndirnar horfa í skjáinn Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hver framleiðir matinn okkar eftir 20 ár? Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Er dr. Henry Alexander bara til punts? Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Mikilvægur áfangi fyrir Norðurland og landið allt Heimir Örn Árnason skrifar Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Frelsi ungra Íslendinga til framtíðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar Skoðun Til hamingju með Þjóðarhöll! Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvernig verjum við sjálfstæði Íslands til framtíðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Staðreyndir og fræðsla um flugmannsstarfið Matthías Arngrímsson skrifar Skoðun 82 ár frá stofnun lýðveldisins: Gleymum ekki sögu okkar Anton Guðmundsson skrifar Skoðun Kos staðfesti ekki tilvist samkomulags Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Við byggðum varnargarða – nú þurfum við að byggja upp samfélagið Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Við erum orðin Afríka: Hvernig íslenska elítan rændi þjóðinni Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Skýrar línur og strangari löggjöf um vindorku Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Alvarleg og viðvarandi hernaðarógn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun 30% lækkun skiptir sveitir landsins máli Axel Sæland skrifar Skoðun Er ný fjármálaáætlun á áætlun? Birta Karen Tryggvadóttir skrifar Skoðun Á að kenna íslensku við Háskóla Íslands? Gauti Kristmannsson skrifar Skoðun Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Enginn á að ýta Íslandi inn um bakdyrnar Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Þegar ESB beitir smáþjóð ofríki Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hver á stjórnsýsluna? Þórólfur Júlían Dagsson skrifar Skoðun Farsældarlögin: Samþætting án úrræða Elín Anna Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson Skoðun
Skoðun Gervigreind er að breyta því hvað það þýðir að vera góður stjórnandi Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Af hverju borgum við evrópsk metverð fyrir grænmeti sem endist í tvo daga? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar
Skoðun Hugleiðing í tilefni að þjóðhátíðardegi Íslands: Grundvöllur sjálfstæðisins var barátta þeirra fátæku fyrir betra samfélagi Ágúst Valves Jóhannesson skrifar
Skoðun Við byggðum varnargarða – nú þurfum við að byggja upp samfélagið Kristín María Birgisdóttir skrifar
Skoðun Þingheimur lokar augum og eyrum Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson ,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Evrópa í áfalli, skilin eftir í gervigreindarkapphlaupinu. Verður Ísland líka utangátta? Björgmundur Örn Guðmundsson Skoðun
Stjórnsýsluframkvæmd við vörslusviptingu búfjár, meðalhóf eða flýtilausn? Sævar Þór Jónsson Skoðun