Varanleg tugprósenta hækkun olíuverðs gæti ýtt verðbólgunni upp í sex prósent
Vaxtahækkun og skilaboð peningastefnunefndar var nauðsynlegt skref til að snúa við óheillaþróun síðustu mánaða þannig að endingu skapist forsendur fyrir lækkun vaxta, að mati hagfræðings, en hann varar við því að verðbólgan geti farið upp undir sex prósent á árinu ef hækkun olíuverðs gengur ekki til baka. Lítilsháttar lækkun á verðbólguálaginu í gær var skammgóður vermir fyrir Seðlabankann og hafa verðbólguvæntingar skuldabréfafjárfesta rokið upp á nýjan leik.
Tengdar fréttir
Spá því að peningastefnunefnd verði „nauðbeygð“ til að hækka vexti
Verðbólguvæntingar hafa aukist á alla mælikvarða á undanförnum vikum, sem hefur þýtt talsvert minnkandi aðhaldsstig peningastefnunnar, og er Seðlabankinn þess vegna „nauðbeygður“ til að hækka vexti um 25 punkta í næstu viku, að mati greinenda IFS. Útlit er fyrir að verðbólgan muni aukast enn frekar í mars og bankinn þurfi að bregðast hratt við „óheppilegri framvindu“ síðustu mánuði.
Því lengur sem verðbólgan er yfir markmiði því meira rýrnar trúverðugleikinn
Með hliðsjón af verðbólguskoti síðustu mánaða og væntingum um betri hagvaxtarhorfur í ár þá kom mjúkur tónn í yfirlýsingu peningastefnunefndar á óvart, að sögn efnahagsráðgjafa IFS. Miðað við verri verðbólguhorfur til skamms tíma telja sumir hagfræðingar sennilegt að bíða þurfi fram í ágúst eftir næstu vaxtalækkun.