Sögulegur samningur Víkinga Valur Páll Eiríksson skrifar 19. mars 2026 14:27 Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður liðsins, Heimir Gunnlaugsson, formaður knattspyrnudeildar, og Hermann Valur Haraldsson, forstjóri Boozt. Vísir/Sigurjón Víkingur opinberaði í dag samstarf við netverslunina Boozt um samstarf til fjögurra ára. Boozt prýðir nýja treyju liðsins og er fyrsta erlenda fyrirtækið, sem ekki er með starfsstöð hér á landi, sem styrkir íslenskt félagslið með þeim hætti. Samningurinn er sá stærsti í sögu Víkings.
Samningur milli Víkings og Boozt var opinberaður með pompi og prakt í Víkinni í dag og fjölmenni lét sjá sig. „Samningurinn er til fjögurra ára og er sá stærsti í sögu félagsins og með samningnum er staða Víkings staðfest sem verðmætur samstarfsaðili alþjóðlegs vörumerkis,“ segir í yfirlýsingu Víkings. Heimir Gunnlaugsson, formaður knattspyrnudeildar Víkings, og Hermann Valur Haraldsson, forstjóri Boozt, handsöluðu samninginn sem er sögulegur og getur haft áhrif á samkeppnishæfi innan Bestu deildarinnar. Klippa: Forstjóri Boozt mikill Víkingur Hermann er mikill fótboltaáhugamaður og var framkvæmdastjóri Bröndby í Danmörku um tíma. Þá stendur honum nærri að semja við Víking þar sem hann lék fyrir liðið í æsku. „Við erum búnir að bíða eftir því að hrópa um allt að séum samstarfsaðili Víkings. Ég spilaði í Víkingi en er líka gamall KA-maður. Ég hef fylgst mikið með þessum tveimur liðum,“ segir Hermann í samtali við Sýn um samninginn. Jafnframt var ný treyja Víkings opinberuð með nýja styrktaraðilanum á bolnum. Víkingar snúa aftur í rauðu og svörtu rendurnar eftir að hafa leikið í svartri treyju í fyrra en treyjuna hannaði leikjahæsti leikmaður liðsins, hönnuðurinn Halldór Smári Sigurðsson. Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, með nýju treyjuna.Vísir/Sigurjón
Víkingur Reykjavík Mest lesið Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Tarik framlengir við Víking Íslenski boltinn Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Körfubolti Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Leikmaður ársins missir af landsleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Sveppi og mamma hans gætu séð tvö lið falla Enn er penninn á lofti í Laugardal Fékk engar skýringar á mestu vonbrigðum ferilsins Sjáðu þrennu sextán ára Bríetar og hægasta sigurmark ársins Segir skipulagið fáránlegt: „Ekki sanngjarnt að annað liðið sé alltaf að elta“ Bríet Fjóla Bjarnadóttir: „Ég varð að klára þetta með þrennu “ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - FH 3-2 | Áfall fyrir titilbaráttu FH Uppgjörið: Þróttur R. - Stjarnan 5-1 | Bríet Fjóla með þrennu í stórsigri Þróttar Sorgarferli að sættast við ónýtan skrokk „Þetta er þorpið manns“ Uppgjörið: ÍBV - Breiðablik 1-2 | Blikar verma toppinn Þrjú lið berjast um eitt öruggt sæti en Fram bjargaði sér „Enginn annar sem hafði trú á okkur en við sjálf“ Sjá meira