Arnar gagnrýndi Guardiola: „Þú þurftir ekki að eyðileggja allt“ Sindri Sverrisson skrifar 18. mars 2026 15:18 Pep Guardiola fer ekki lengra með Manchester City í Meistaradeild Evrópu í ár. EPA/ADAM VAUGHAN Arnar Gunnlaugsson hafði ýmislegt að segja um Manchester City-liðið hans Pep Guardiola eftir að það féll úr leik gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í fótbolta í gærkvöld.
Landsliðsþjálfarinn lét móðan mása í Meistaradeildarmörkunum á Sýn Sport í gærkvöld enda lengi verið aðdáandi Guardiola og ekki par hrifinn af breytingum hans á City-liðinu. Brot af umræðunni má sjá hér að neðan. Klippa: Arnar um gjörbreytt lið Guardiola „Ég veit alveg að leikurinn er búinn að breytast allverulega síðustu ár. Orðinn meira „direct“. En City var með svo góða formúlu. Það var hægt að „tvíka“ hana aðeins til. Þú þurftir ekki að eyðileggja allt. Tölfræðin talar sínu máli um hvað þeir hafa dregist aftur úr miðað við síðustu 2-3 ár,“ sagði Arnar sem sýndi klippur af „gamla“ City-liðinu máli sínu til stuðnings. Hann ber þó enn ómælda virðingu fyrir Guardiola: „Gaurinn náttúrulega breytti fótboltanum og allir þjálfarar í heiminum hafa stolið einhverjum hugmyndum frá honum. En það má alveg gagnrýna hann þegar það á við. Þetta er náttúrulega bara ekki nógu gott hjá liði af sömu stærðargráðu og Manchester City. Mikið af þessum leikjum hafa verið… Það er eins og karlinum leiðist stundum fyrir leiki. Hann breytir bara,“ sagði Arnar og nefndi dæmi um óvæntar breytingar sem Guardiola hefur gert fyrir mikilvæga leiki. Afraksturinn allan þann tíma sem Guardiola hefur stýrt City, með mögnuðum árangri á Englandi, er aðeins einn Evrópumeistaratitil og síðustu tvö skipti hefur liðið fallið snemma úr keppni. „Þetta er ekki nægilega gott miðað við þann hóp sem hann hefur haft til umráða öll þessi ár. Þessi ákvörðun hjá honum á Bernabeu [í liðsuppstillingu í fyrri leiknum við Real] var skrýtin, svo ólík honum. Alla jafna vill hann hafa stjórn í útileikjunum og setja svo í fluggírinn á heimavelli. Stoltið bar hann svolítið ofurliði. Hann vildi fara á Bernabeu, sem gamall Barcelona-maður, og sýna þeim hvítklæddu í tvo heimana. Að nýja City-útgáfan væri komin til að vera og svo klikkaði það svona stórkostlega,“ sagði Arnar.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Gætu tekið þátt í meti en fráfall konungsins hefur mikil áhrif Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán FIFA tekur til varna og sakar UEFA um ófrægingarherferð gegn Infantino Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Hver var í flottustu treyjunni? Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Tekur aftur við tveimur mánuðum eftir að hafa hætt Tufegdzic bræður til Malmö Klopp umbreytir starfinu Íhugar að hætta með argentínska landsliðinu eftir þungt bann Allir leikir stoppaðir fyrir Messi Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs Daníel Leó til dönsku meistaranna Banni Aubameyang með landsliðinu aflétt en hann hættir samt KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Bayern lenti óvænt undir í fyrstu umferð bikarsins Elías Rafn hélt hreinu og kom Midtjylland á toppinn Cecilía Rán tryggði Inter í Meistaradeildina Arna og Fanney áfram í Evrópubikarnum Sjá meira