Ákvörðun peningastefnunefndar um að hækka vextina úr 7,25 í 7,5 prósent – fyrsta vaxtahækkun Seðlabankans frá því í ágúst 2023 – kemur aðeins fjórum mánuðum eftir að vextir höfðu áður verið lækkaðir í nóvember um 25 punkta. Frá þeim tíma hefur hins vegar flest fallið gegn peningastefnunni samhliða því að verðbólga hefur aukist vel umfram allar spár og verðbólguvæntingarnar hækkað að sama skapi skarpt.
Skiptar skoðanir voru á meðal helstu greinenda og hagfræðinga í aðdraganda vaxtaákvörðunar peningastefnunefndar í þetta sinn. Hagfræðingar Landsbankans, Íslandsbanka og IFS höfðu spáð 25 punkta hækkun, meðal annars með hliðsjón af því að Seðlabankinn þyrfti að bregðast við hækkun verðbólguvæntinga, á meðan greinendur Arion, Kviku og Acro verðbréfa bjuggust við óbreyttum vöxtum – og töldu þá fremur að nefndin myndi láta duga að senda harðan tón í yfirlýsingunni sinni samhliða því að glitta í vaxtahækkun á næsta fundi í maí.
Í yfirlýsingu nefndarinnar í morgun, sem sendir frá sér afar harðan tón, er tekið fram að flestar hagvísar beri nú vitni um hægari efnahagsumsvif þrátt fyrir að verðbólga hafi mælst 5,2 prósent tvö mánuði í röð.
Nefndin er jafnframt tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar til þess að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði þótt það gæti hægt enn frekar á efnahagsumsvifum.
„Að nokkru leyti má rekja það til hækkunar á opinberum gjöldum og afleiddra áhrifa. Þá bættust við áhrif kjarasamningsbundinna launahækkana á almennum vinnumarkaði í byrjun árs. Undirliggjandi verðbólga hefur aukist og ekki verið meiri í ríflega ár. Verðbólguvæntingar eru jafnframt teknar að hækka,“ segir í yfirlýsingunni,
Þá er einnig bent á að hækkun olíuverðs og annarrar hrávöru í kjölfar stigmögnunar átaka við Persaflóa hafi nú þegar leitt til frekari hækkunar á verðbólguvæntingum á skuldabréfamarkaði.
„Dragist átökin á langinn er hætta á að verðhækkanir breiðist út, ekki síst þar sem verðbólguvæntingar eru eins háar og raun ber vitni. Aukin hætta er því á að endurskoðunarákvæði kjarasamninga muni virkjast síðar á árinu sem gæti aukið enn frekar á undirliggjandi verðbólguþrýsting,“ segir peningastefnunefndin og sendir um leið aðilum vinnumarkaðarins skýr skilaboð um hættuna á því ef samningum verður slitið í haust.
Af þessum sökum, útskýrir nefndin, var talið rétt að hækka vexti Seðlabankans á nýjan leik en í yfirlýsingunni í morgun er búið að taka út setninguna „um frekari ákvarðanir um lækkun vaxta“ sem áður hefur verið um nokkurt skeið. Þess í stað segist peningastefnunefndin „tilbúin að herða taumhald peningastefnunnar enn frekar“ í því skyni að tryggja hjöðnun verðbólgu að markmiði jafnvel þótt það kunni að verða til þess að hægja enn frekar á efnahagsumsvifum.

