Víða hægir vindar en hvessir í kvöld Atli Ísleifsson skrifar 18. mars 2026 07:17 Hiti verður yfirleitt núll til fimm stig að deginum. Vísir/Vilhelm Hæðarhryggur þokast austur yfir landið í dag og verða vindar því almennt hægir og bjart með köflum. Áfram verður þó norðvestan strekkingur með stöku éljum norðaustanlands fram yfir hádegi.
Á vef Veðurstofunnar segir að á sama tíma nálgist vaxandi lægðardrag úr suðvestri og fari sunnanvindur þá jafnframt vaxandi á vesturhelmingi landsins. Má reikna með að hann verði allhvass eða hvass með snjókomu eða slyddu og síðar rigningu þar seint í kvöld. Hiti verður yfirleitt núll til fimm stig að deginum.„Gengur í sunnanhvassviðri eða -storm í nótt með talsverðri eða mikilli rigningu, einkum sunnan- og vestanlands. Á Vestfjörðum, Ströndum og sums staðar á Norðurlandi er talsverður snjór, svo þar gæti gert hláku, svo ekki sé talað um asahláku. Mikilvægt er að hreinsa vel frá niðurföllum til að forðast vatnstjón, sýna aðgát og fylgjast með veðurspám og -viðvörunum. Styttir upp á Norðausturlandi uppúr hádegi á morgun og hiti víða 5 til 10 stig. Annað kvöld fara skilin áfram til vesturs og kólnar þá hratt í kjölfarið með éljum, fyrst á vestanverðu landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á fimmtudag: Sunnan og suðvestan 15-23 m/s og talsverð rigning, en úrkomulítið norðaustantil og hiti 5 til 10 stig. Skúrir eða él með kólnandi veðri vestantil um kvöldið. Á föstudag: Suðvestan 13-20 m/s og éljagangur, hvassast við ströndina, en hægara og bjart með köflum austanlands. Hiti í kringum frostmark. Á laugardag: Hægt minnkandi suðvestanátt og él, 5-13 m/s undir kvöld, yfirleitt bjartviðri norðan- og austanlands, en vaxandi austanátt syðst um kvöldið og fer að snjóa. Hiti kringum frostmark. Á sunnudag: Gengur í norðan strekking eða allhvassan vind með snjókomu eða éljum, einkum austanlands , en rofar smám saman til sunnan heiða. Frost víða 0 til 5 stig. Á mánudag: Útlit fyrir fremur hæga norðlæga átt með éljum, en bjart með köflum syðra. Talsvert frost. Á þriðjudag: Líklega vaxandi suðaustanátt með snjókomu eða slyddu sunnan- og vestanalands og smám saman hlýnandi veður.
Veður Mest lesið Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Erlent Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Innlent Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Innlent Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Innlent Íslensk ungmenni drekka minnst af orkudrykkjum Innlent Barnaníðingur fékk ekki annað leyfi hjá Hæstarétti Innlent Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Innlent Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Erlent „Skólinn okkar er alltof lítill“ Innlent Ljóst hvar hnífurinn stendur í kúnni Innlent Fleiri fréttir Rigning, rigning, rigning Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Sjá meira