Formúla 1

For­múla 1 orðin „raf­hlöðu heims­meistara­mótið“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Fernando Alonso, tvöfaldur heimsmeistari og ökuþór Aston Martin
Fernando Alonso, tvöfaldur heimsmeistari og ökuþór Aston Martin Vísir/Getty

Fernando Alonso hrífst lítið af umdeildum og veigamiklum breytingum á bílum í Formúlu 1 kappakstrinum fyrir yfirstandandi leiktíð. Skiptar skoðanir eru á nýjum bílum og gagnrýnin töluverð í upphafi leiktíðar.

Breytingarnar sem hafa hvað mest áhrif á ökuþórana hafa með nýjar vélar. Rafknúni hluti vélarinnar var aukinn og er nú skipt 50-50 milli brunahreyfils og rafknúna hlutans. Áður var vægi brunahreyfilsins meiri.

Þetta hefur þær afleiðingar að ökuþórar þurfa að beita nýjum og ef til vill óvenjulegum aðferðum við akstur til að þeir hafi næga hleðslu á rafhlöðinni til að hámarka afköst.

Alonso hefur átt í sérlega miklum vandræðum með liði Aston Martin en bíll þess liðs er skemst á veg kominn hvað þróun varðar. Hvorki Alonso né liðsfélaginn Lance Stroll hafa klárað fyrstu tvær keppnirnar og sagði Alonso á dögunum óttast taugaskaða við of langan tíma í senn í Aston Martin-bílnum.

Jákvæði bletturinn hefur þó verið að Alonso hefur náð að komast úr 17. og 18. sæti upp í tíunda sæti í fyrstu tveimur keppnunum, áður en hann og/eða bíllinn gefst upp.

„Ræsingin er skemmtileg. Bæði í Ástralíu og Kína, bíllinn fer hratt af stað,“

„Á fyrsta hring erum við með rafhlöðu á pari við aðra, sem er full. En svo hefst rafhlöðuheimsmeustaramótið og í því móti erum við ekki eins góðir og aðrir,“ segir Alonso sem skýtur þar á aukið vægi rafhluta bílsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×