Fyrningarreglur námslána og lagaskil nýrra laga Sveinn Ævar Sveinsson skrifar 16. mars 2026 13:01 Með lögfestingu laga nr. 60/2020 um Menntasjóð námsmanna, sem tóku gildi 26. júní 2020, var gerð grundvallarbreyting á réttarumhverfi námslána hér á landi. Lögin leystu af hólmi lög nr. 21/1992 um Lánasjóð íslenskra námsmanna og kynntu til sögunnar nýjar reglur, meðal annars um fyrningu krafna. Veigamestu breytinguna í því samhengi er að finna í 2. mgr. 26. gr. laganna, þar sem kröfur vegna námslána eru undanþegnar sérreglum 165. gr. laga nr. 21/1991 um gjaldþrotaskipti o.fl., sem fjalla um tveggja ára fyrningarfrest krafna. Sambærilegt ákvæði var ekki að finna í eldri lögum og er því um nýmæli að ræða. Framangreind breyting vekur upp spurningar um lagaskil og réttarstöðu einstaklinga sem stofnuðu til námslána í tíð eldri laga. Meginálitaefnið lýtur að því hvort heimilt sé að beita hinu nýja ákvæði á lánasamninga sem gerðir voru áður en lögin tóku gildi. Jafnframt vaknar sú spurning hvort slík beiting samrýmist grundvallarreglum íslensks réttar, svo sem banninu við afturvirkni íþyngjandi laga, og hvort hún gangi gegn réttmætum væntingum og standist jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Breytt réttarumhverfi Við skoðun á framangreindu álitaefni er mikilvægt að hafa í huga þá réttarbót sem felst í 165. gr. laga um gjaldþrotaskipti o.fl., eins og lagagreininni var breytt með lögum nr. 142/2010. Samkvæmt ákvæðinu fellur krafa niður tveimur árum eftir lok gjaldþrotaskipta nema lánadrottinn höfði sérstakt dómsmál og fái fyrningarslit viðurkennd. Markmið löggjafans var að tryggja gjaldþrota einstaklingum í kjölfar efnahagshrunsins raunhæft tækifæri til að koma fjármálum sínum í rétt horf og voru almennar heimildir lánadrottna til að rjúfa fyrningu þrengdar verulega. Í kjölfar þessara breytinga höfðaði Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN), forveri Menntasjóðs námsmanna, fjölda dómsmála gegn gjaldþrota einstaklingum í því skyni að fá fyrningarslit viðurkennd. Hæstiréttur komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að LÍN hefði ekki sýnt fram á þau skilyrði sem nauðsynleg voru til að fá fyrningarslit viðurkennd. Í dómum réttarins nr. 731/2016, 730/2016 og 645/2016 var til dæmis tekið fram að LÍN hefði ekki sýnt fram á að aðstæður hans væru sérstakar í samanburði við aðra lánveitendur né að líkur væru á að fullnusta myndi fást á kröfum sjóðsins á nýjum fyrningartíma. Framangreind dómaframkvæmd gefur til kynna að einstaklingar sem tóku námslán samkvæmt eldri lögum hafi mátt gera ráð fyrir að fyrningarreglur gjaldþrotalaga ættu við skuldir þeirra ef til gjaldþrotaskipta kæmi. Lagabreyting og lagaskil Með fyrrgreindri 26. gr. laga um Menntasjóð námsmanna var þessu réttarástandi, sem hafði staðið óhaggað um árabil, breytt á svipstundu. Í ákvæðinu kemur fram að um fyrningarfrest kröfu vegna námslána fari eftir ákvæðum laga um fyrningu kröfuréttinda og að ákvæði laga um gjaldþrotaskipti um lengd fyrningarfrests og sérreglur þeirra um slit fyrningar gildi ekki um námslán. Felst í þessu að Menntasjóður námsmanna þarf ekki lengur að uppfylla skilyrði um sérstaka hagsmuni til að fá fyrningu slitið heldur gilda um það almennar reglur. Tilvísuð undanþága frá sérreglum gjaldþrotalaga hefur verið umdeild frá upphafi. Við þinglega meðferð frumvarpsins kom fram gagnrýni frá umsagnaraðilum og minnihluta allsherjar- og menntamálanefndar, sem taldi að ákvæðið bryti gegn meginreglu skuldaskilaréttar um jafnræði kröfuhafa og fæli í sér mismunun milli skuldara eftir tegund skulda. Tilgangur ákvæðisins virtist einkum sá að styrkja stöðu Menntasjóðsins í málsóknum gegn gjaldþrota einstaklingum. Jafnframt var bent á að vafi léki á því hvort heimilt væri að beita ákvæðinu afturvirkt, enda hefði það í eðli sínu íþyngjandi réttaráhrif og svipti lánþega réttindum eftir lögum um gjaldþrotaskipti. Bann við afturvirkni íþyngjandi laga Í íslenskum rétti hefur lengi verið viðurkennd sú meginregla að íþyngjandi lögum verði ekki beitt með afturvirkum hætti án skýrrar lagaheimildar. Undirstaða þeirrar reglu er einkum sú að einstaklingar geti treyst því að réttindi þeirra og skyldur mótist af þeim lögum sem gilda þegar ráðstafanir eru gerðar. Lánasamningar um námslán, líkt og aðrir gagnkvæmir samningar, mótast þannig af þeim lagaramma sem gildir við stofnun þeirra. Krafa á hendur lánþega sem tók lán samkvæmt eldri lögum er því vafalaust stofnuð á þeim lagagrundvelli. Af þessum ástæðum vaknar sú spurning hvort það samrýmist téðri bannreglu að beita nýja ákvæðinu afturvirkt á slík réttarsambönd og þar með svipta skuldara þeirri réttarvernd sem fólst í eldri reglum. Rétt er að geta þess að í lögum nr. 60/2020 er ekki að finna sérstakar lagaskilareglur sem kveða á um að ákvæðið umdeilda skuli einnig gilda um eldri kröfur. Forsendur lagabreytingar Í athugasemdum við 26. gr. í frumvarpi til laga nr. 60/2020 kemur fram að kröfur vegna námslána séu annars eðlis en flestar peningakröfur, þar sem verðgildi menntunar verði ávallt eftir hjá lánþeganum þrátt fyrir hugsanlegt gjaldþrot. Rök þessi eru heldur veik að mati höfundar, einkum í ljósi þeirrar staðreyndar að stór hópur námsmanna lýkur aldrei námi sökum áfalla, veikinda eða annarra ófyrirséðra aðstæðna. Í slíkum tilvikum er varhugavert að ganga út frá því að umræddur ávinningur, sem almennt leiðir af menntun og hið umdeilda ákvæði grundvallast á, sé til staðar hjá öllum einstaklingum. Beiting þessarar íþyngjandi reglu gagnvart öllum námsmönnum, án tillits til þess hvort slíkur ávinningur sé í raun til staðar, skýtur skökku við og vekur upp áleitnar spurningar um forsendur reglunnar sem og samræmi hennar við jafnræðisjónarmið. Niðurlag Í ljósi alls framangreinds má draga þá ályktun að réttarstaða þeirra sem tóku námslán samkvæmt eldri lögum sé að einhverju leyti óljós eftir setningu nýju laganna. Þegar horft er til reglunnar um bann við afturvirkni íþyngjandi laga, þeirra réttmætu væntinga sem lánþegar gátu haft á grundvelli fyrri dómaframkvæmdar, sem og þeirra álitaefna sem vakna um rökstuðning lagabreytingarinnar, hníga sterk rök að því að hið umdeilda ákvæði geti ekki gilt fortakslaust um alla lánþega eða eldri lánasamninga. Sú réttaróvissa sem þannig virðist hafa skapast, sem einnig birtist í gagnrýni við meðferð málsins á Alþingi, kallar á að æðsti dómstóll þjóðarinnar skeri endanlega úr um þetta álitaefni. Höfundur er löglærður fulltrúi hjá lögmannsstofunni Sævar Þór & Partners. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Námslán Hagsmunir stúdenta Mest lesið Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun Skoðun Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar
Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender Skoðun