Skítamix sem börnin borga Róbert Ragnarsson og Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifa 16. mars 2026 07:45 Skýrsla sem lögð var fram í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur í mars sýnir að 21 prósent leikskóla og 16 prósent grunnskóla í borginni hafa þurft að loka tímabundið, flytja starfsemi eða starfa við verulega skertar aðstæður vegna viðhalds og loftgæðavandamála. Þessi staða hefur áhrif á hundruð barna og starfsfólks á hverjum degi. Það ætti að vera sjálfsagt að börn í borginni okkar læri og leiki sér í öruggu og heilnæmu umhverfi, en því miður er staðan í mörgum leik- og grunnskólum borgarinnar langt frá því að vera þannig. Fyrir foreldra þýðir þetta óvissu. Fyrir starfsfólk þýðir þetta erfiðari vinnuaðstæður. Fyrst og fremst þýðir þó þetta röskun á daglegu lífi barnanna. Listinn yfir húsnæði sem hefur þurft að loka eða takmarka notkun á er allt of langur, og er afleiðing ábyrgðar- og stjórnleysis í borgarstjórn. Í Langholtsskóla hefur íþróttahúsið verið lokað frá vorinu 2025 vegna myglu. Nemendur í Hagaskóla eru í færanlegum einingum á meðan beðið er eftir framkvæmdum. Í Ölduselsskóla þurfti að flytja hluta skólastarfsins í Seljakirkju vegna loftgæðavandamála. Svona mætti halda lengi áfram varðandi ástandið í grunnskólum borgarinnar. Á leikskólastiginu er staðan víða svipuð. Leikskólar hafa verið fluttir í tímabundið húsnæði, aðrir starfa í færanlegum einingum eða hafa þurft að fækka plássum á meðan framkvæmdir standa yfir. Í einu tilviki hefur starfsemi jafnvel verið á þremur stöðum á skömmum tíma og leikskólanum Vinagerði verður lokað í haust. Húsnæði Laugasólar hefur staðið tómt um árabil vegna þess að borgarstjórn getur ekki tekið ákvörðun um hvort eigi að rífa, eða endurbyggja. Þegar þessi mál eru skoðuð blasir eitt við: of oft hefur viðhaldi verið frestað þar til vandinn verður alvarlegur. Þá þarf að grípa til bráðabirgðalausna – færanlegra eininga, flutninga á starfsemi og neyðarviðgerða. Slíkar lausnir eru sjaldnast góðar og nánast alltaf dýrari til lengri tíma litið. Reykjavíkurborg þarf að hugsa lengra fram í tímann þegar kemur að skólahúsnæði. Það þarf skýra langtímaáætlun um viðhald og uppbyggingu, betra utanumhald um eignir borgarinnar og meira gagnsæi um stöðu húsnæðis áður en vandinn verður að krísu. Það þarf að forgangsraða peningum í grunnþjónustu í stað gæluverkefna í Ráðhúsinu. Þetta eru grunnatriði í ábyrgri stjórnsýslu. Viðreisn hefur lagt áherslu á að borgin verði betur rekin – með skýrari forgangsröðun og faglegri nálgun í rekstri innviða. Þegar kemur að skólum ætti markmiðið að vera einfalt: að sinna viðhaldi áður en vandinn verður til. Í Reykjavík í dag er fjöldinn allur af börnum sem getur ekki sinnt námi sínu af þeim krafti sem þau vilja vegna þess að skólinn þeirra er myglaður. Börn sem þurfa að flytjast á milli staða, vera í bráðabirgðahúsnæði eða heima hjá sér með hausverk og illt í maganum vegna þess að þeim er boðið upp á óheilnæm hús þar sem þeim líður ekki vel. Þetta er óásættanlegt. Við megum ekki nálgast þessi mál eins og þetta snúist um einhver tæknileg útfærsluatriði. Eða að þetta sé bara enn ein framkvæmdin sem megi fresta þar til Orkuveitan er búin að millifæra arðgreiðslu ársins. Þetta snýst um heilsu barnanna okkar – barnanna sem munu halda uppi þessu samfélagi í framtíðinni. Börn í Reykjavík eiga einfaldlega betra skilið – og við getum gert betur. Við í Viðreisn ætlum að gera betur og við vitum hvernig við ætlum að gera það. Höfundar skipa 2. og 6. sætið á lista Viðreisnar í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Róbert Ragnarsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar