Nýbakaði faðirinn með níu mörk Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. mars 2026 17:33 Sex af níu mörkum Ómars Inga Magnússonar gegn Bergischer komu úr vítaköstum. getty/Jürgen Fromme Ómar Ingi Magnússon fór mikinn þegar Magdeburg vann tveggja marka sigur á Bergischer, 25-27, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.
Arnór Þór Gunnarsson þjálfar Bergischer og hans menn stóðu heldur betur uppi í hárinu á Evrópumeisturunum í dag. Staðan í hálfleik var jöfn, 11-11, og Bergsicher hélt áfram að þjarma að Magdeburg í seinni hálfleik. Þegar rúmar sjö mínútur voru eftir komust heimamenn yfir, 23-22. Magdeburg gaf þá aðeins í og komst í 24-26. Bergischer minnkaði muninn í 25-26 en Ómar Ingi gulltryggði sigur Magdeburg, 25-27, þegar hann skoraði sitt níunda mark í leiknum. Ómar varð pabbi í síðustu viku og hélt upp á það með flottum leik. Hann var næstmarkahæstur í liði Magdeburg á eftir Svíanum Felix Claar sem skoraði tíu mörk. Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk fyrir Magdeburg en Elvar Örn Jónsson var ekki á meðal markaskorara. Magdeburg er með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar. Bergischer er í 15. sætinu, tveimur stigum frá fallsæti. Ýmir Örn Gíslason og félagar í Göppingen gerðu góða ferð til Lemgo og unnu heimamenn, 27-30. Þetta var þriðji sigur Göppingen í röð en liðið er með 22 stig í 10. sæti deildarinnar. Ýmir komst ekki á blað í leiknum í dag. Botnlið Leipzig gerði jafntefli við Stuttgart á heimavelli, 29-29. Blær Hinriksson skoraði tvö mörk og gaf þrjár stoðsendingar fyrir Leipzig sem er þremur stigum frá öruggu sæti.
Þýski handboltinn Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Sjá meira