Martraðarbyrjun fyrir Frey en Júlíus Mar í draumalandi Aron Guðmundsson skrifar 15. mars 2026 15:34 Freyr Alexandersson, þjálfari Brann Vísir/Getty Júlíus Mar Júlíusson stóð vaktina í vörn Kristiansund sem vann magnaðan endurkomusigur á lærisveinum Freys Alexanderssonar í Brann í fyrstu umferð norsku úrvalsdeildarinnar í dag. Lokatölur 3-2 sigur Kristiansund þar sem að sigurmarkið kom í uppbótartíma.
Freyr Alexandersson, þjálfari Brann, gat aðeins treyst á einn af íslensku leikmönnum sínum í leik dagsins. Jón Dagur Þorsteinsson var í byrjunarliði Brann en þeir Sævar Atli Magnússon, Eggert Aron Guðmundsson og Kristall Máni Ingason voru allir fjarverandi vegna meiðsla. Hjá Kristiansund var Júlíus Mar Júlíusson, sem fenginn var frá KR, í byrjunarliðinu og þreytti frumraun sína í norsku úrvalsdeildinni. Júlíus Mar hér í leik með KR en hann þreytti frumraun sína í efstu deild Noregs í dag.vísir / jón gautur Kristiansund komst yfir í leiknum strax á 3.mínútu með marki úr vítaspyrnu frá Mustapha Isah. 1-0. Þannig stóðu leikar allt þar til rétt fyrir lok fyrri hálfleiksins þegar brotið var á Jóni Degi innan vítateigs Kristiansund og vítaspyrna dæmd. Joachim Soltvedt tók vítaspyrnuna fyrir Brann og jafnaði metin fyrir liðið, 1-1. Bard Finne kom Brann síðan yfir í fyrsta sinn í leiknum með öðru marki liðsins á 65.mínútu. 1-2. Það stefndi allt í sigur Brann en á 84.mínútu dró til tíðinda þegar að Promise Meliga jafnaði metin fyrir Kristiansund, 2-2 og Promise hafði ekki lokið við dagsverk sitt. Hann var aftur á ferðinni í uppbótartíma er hann tryggði Kristiansund sigur með dramatísku sigurmarki. Frábær endurkomusigur hjá Júlíusi Mar og liðsfélögum hans gegn einu af bestu liðum Noregs. Á sama tíma afar svekkjandi úrslit fyrir Freysa og lærisveina hans í brann Brann í upphafi tímabilsins, til mikils ætlast af liðinu á meðan að búist er við því að Kristiansund verði að berjast í neðri helmingi deildarinnar.
Norski boltinn Mest lesið Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Íslenski boltinn „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Enski boltinn Fleiri fréttir „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Sjá meira