Myndaveisla: Töfrandi stemning á stórtónleikum Laufeyjar Agnar Már Másson skrifar 15. mars 2026 00:17 Laufey tók sína helstu smelli og meira til er hún söng fyrir átta þúsund tónleikagesti í Kórnum í kvöld. Vísir/Viktor Freyr „Ég þekki svo marga úti í salnum,“ sagði tónlistarkonan Laufey er hún ávarpaði tónleikagesti í Kórnum í Kópavogi í kvöld. „Ég er svo stressuð.“
Viktor Freyr ljósmyndari fangaði nokkur augnablik af stórtónleikum íslensku stjörnunnar Laufeyjar Lín sem haldnir voru með pompi og prakt í kvöld. Húsið var smekkfullt og voru gestir á öllum aldri. Aðrir tónleikar verða haldnir á morgun, sunnudag. Laufey á sviðinu í kórnum í kvöld.Vísir/Viktor Freyr Tónlistarkonan Elín Hall hitaði upp fyrir tónleika Laufeyjar í kvöld.Vísir/Viktor Freyr Það var vitaskuld rífandi stemning í Kórnum þar sem átta þúsund manns voru mættir til að heyra söng Laufeyjar, sem hefur getið sér góðan orðstír á íslenskri jafnt sem erlendri grundu. Hefur hún unnið tvenn Grammy-verðlaun í flokki hefðbundinnar popptónlistar, annars vegar 2024 og hins vegar 2026. Fáir tónlistarmenn geta státað af slíkum árangri. Milli laga varpaði Laufey þeirri spurningu út í salinn hvort einhverjir tónleikagestir væru ekki íslenskir. Sumir hrópuðu til að gefa það í skyn. „Ég veit ekki við hverju þið bjuggust en ég mun að mestu leyti tala íslensku,“ sagði hún þá á ensku við erlendu tónleikagestina í salnum.Vísir/Viktor Freyr Þessir ungu aðdáendur létu sig ekki vanta á tónleikana.Vísir/Viktor Freyr Kópavogurinn markar síðasta stoppið á tónleikaferðalagi ofurstjörnunnar en tónleikarnir tvennu eru þeir einu þar sem Laufey talar íslenska tungu og kom hún inn á það milli laga á tónleikunum í kvöld, eftir að tónskáldið Elín Hall hafði hitað upp fyrir flutning Laufeyjar. Þessar ungu dömur mættu með góðaskapið á tónleikana en mikil spenna var í loftinu áður en Laufey steig á svið.Vísir/Viktor Freyr Spurði hún út í sal hvort erlendir tónleikagestir væru í salnum og fékk ágætar undirtektir. „Ég veit ekki við hverju þið bjuggust en ég mun að mestu leyti tala íslensku,“ sagði hún þá á ensku við erlendu tónleikagestina í salnum, og uppskar hlátur. Laufey klæddist glæsilegum ballkjól á sviðinu.Vísir/Viktor Freyr Öllu var tjaldað til fyrir þessa tónleika, sem eru með þeim stærri sem haldnir hafa verið á Íslandi. Glæsilegu sviði hafði verið komið upp fyrir aftan söngkonuna og stórkostleg ljósasýning sást á tjaldinu fyrir aftan söngkonuna. Guðrún og Bára úr hljómsveitinni Dóru og Döðlunum, sem fólk kannast kannski við úr söngvakeppni sjónvarpsins 2025, létu sig ekki vanta á tónleikana.Vísir/Viktor Freyr Eins og við mátti búast var röðin á klósettið nokkuð löng.Vísir/Viktor Freyr Fjölskyldur skemmtu sér vel í Kórnum.Vísir/Viktor Freyr
Tónleikar á Íslandi Tónlist Laufey Lín Samkvæmislífið Kópavogur Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Guðjón Þorgils flytur lag Hinsegin daga Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Patrik hættur að gigga: „Mér líður eins og apa í búri“ Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki ennþá“ Grafalvarlegt nýtt efni: „Jafn tilgangslausar og að selja flugelda inni í helli“ Von á tíu nýjum lögum tíu árum eftir andlátið „Undirstaða Hörpu mun hristast undir hreinum og ómenguðum krafti“ „Þýðir í raun bara endalok fyrir íslenska útgefna tónlist“ Sagði Viktoríu Beckham að „fokka sér“ Litla systir Gretu Thunberg ætlar að verða súperstjarna Innipúkunum fjölgar enn Bonnie Tyler er látin Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Landslið íslenskra söngvara syngur afmælislag Bylgjunnar Söngvari YMCA látinn Sjá meira