Ummæli Sönnu kalla á svör - hver er „freki karlinn“? Bergljót Gunnlaugsdóttir, Birna Gunnlaugsdóttir, Geirdís H. Kristjánsdóttir, Hallfríður Þórarinsdóttir, Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir, Rósa Guðný Arnardóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir skrifa 12. mars 2026 07:45 Mikill ágreiningur hafði verið innan Sósíalistaflokks Íslands sem braust fram að loknum alþingiskosningum haustið 2024. Ágreiningurinn var fyrst og fremst vegna þeirra stjórnarhátta sem voru við lýði innan flokksins. Helstu ástæður ágreiningsins voru skortur á lýðræðislegum og gagnsæum vinnubrögðum og ráðstöfun fjármuna flokksins. Nýverið endurvakti Sanna Magdalena Mörtudóttir deiluna með því að vísa til flokksfélaga sinna sem „frekra karla“ í þættinum Lyklavöld. Á hún þar við unga menn í flokknum sem við þekkjum af prúðmennsku einni og kurteisi. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem hún gagnrýnir flokksmeðlimi opinberlega að ósekju, þótt hún vilji hafa annan fótinn innan flokksins í stað þess að segja sig úr honum Þetta er í annað sinn sem hún segir í viðtali að mesta rólyndisfólk séu afar vafasamir einstaklingar. Við sitjum ekki lengur hljóðar hjá og teljum mikilvægt að setja fram okkar sjónarmið. Tveir þriðju hlutar félagsmanna kusu nýja stjórn á aðalfundi síðastliðið vor og markaði sú niðurstaða breytingar á stjórnarháttum sem áður hafði verið kallað eftir. Svo sem auknu lýðræði og gagnsæi í ákvörðunum flokksins, fleiri félagsfundum, stofnun svæðafélaga og markvissari nýtingu fjármuna hans. Sanna Magdalena var sjálfkjörin sem pólitískur leiðtogi flokksins, sem er lýsandi fyrir vilja til samvinnu. Eftir aðalfundinn sagði Sanna sig frá öllum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn og hafnaði þátttöku í sameiginlegu starfi og fundum flokksins þrátt fyrir að henni hafi ítrekað verið boðin sáttarhönd. Hún starfar því sjálfstætt í borgarstjórn. Á fyrstu mánuðunum eftir aðalfundinn sat flokkurinn undir mikilli gagnrýni, meðal annars á Facebook-síðunni Rauða þræðinum. Orðræðan þar var oft mjög hörð. Hluti þeirrar umræðu rataði í fjölmiðla. Að okkar mati er mikilvægt að umræðan byggi frekar á staðreyndum og málefnalegri umfjöllun. Sanna tók þátt í umdeildum breytingum á stjórn Vorstjörnunnar, húsfélags sem fór jafnframt með stóran hluta af fjármunum flokksins. Átta mánuðum eftir breytingar á stjórn Vorstjörnunnar hefur ný stjórn enn ekki fengið skráningu hjá fyrirtækjaskrá. Sem stjórnarmaður í starfandi stjórn Vorstjörnunnar tók hún þátt í þeirri ákvörðun að læsa flokkinn út úr húsnæði sínu og eru enn nokkrar eignir flokksins þar. Flokkurinn hefur kært einstakling til lögreglu vegna meintra fjárhagsbrota, eftir að hann millifærði fé flokksins yfir á Vorstjörnuna í leyfisleysi í júní síðastliðnum. Sanna Magdalena hefur hins vegar lýst yfir stuðningi við viðkomandi. Í aðdraganda Alþingiskosninga 2024 ákvað Sanna Magdalena að skipa sjálf í efstu fimm sæti í öllum kjördæmum, þrátt fyrir að félagsfundur hefði áður tekið aðra ákvörðun um það fyrirkomulag. Þannig hafnaði hún lýðræðinu í flokknum. Sá veruleiki sem sumir innan flokksins vildu viðhalda fól einnig í sér að ráðstafað var til „félagasamtaka“ sem stofnuð voru til þess eins að draga fjármuni út úr flokknum. Sú ráðstöfun fór fram án formlegra samþykkta eða ítarlegrar umræðu innan flokksins. Einnig kom fyrir að mikilvæg mál voru rædd án þess að þau væru skráð í fundargerðir. Ágreiningur innan flokksins fékk því ekki hefðbundna lýðræðislega málsmeðferð. Frá aðalfundinum í maí 2025 hefur flokkurinn unnið að úrbótum á starfsháttum og lagt áherslu á að styrkja bæði lýðræðislega ferla og skipulag. Markmiðið er að byggja upp sterkan og virkan Sósíalistaflokk sem starfar á traustum lýðræðislegum grunni. Framganga Sönnu hefur vakið spurningar meðal flokksmanna. Frá síðasta aðalfundi hefur hún ekki miðlað upplýsingum um borgarstjórnarstarf sitt á félagsfundum, en óskað eftir aðgangi að tölvupóstum og félagaskrá flokksins. Þá hefur hún jafnframt boðið fram með Vinstri grænum, en vill áfram vera skráð í flokkinn. Ekkert hefur bent til vilja um sættir af hennar hálfu, eins og nýleg ummæli hennar bera vitni um. Lýðræðislegar ákvarðanir ráða nú ferðinni í Sósíalistaflokknum þar sem mannauðurinn fær að njóta sín og allir fá að sýna styrkleika sína. Því við erum í þessu saman. Bergljót Gunnlaugsdóttir, Birna Gunnlaugsdóttir, Geirdís H. Kristjánsdóttir, Hallfríður Þórarinsdóttir, Júnía Líf Maríuerla Sigurjónsdóttir, Rósa Guðný Arnardóttir og Sigrún E. Unnsteinsdóttir eru félagar í Sósíalistaflokki Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar