„Gátum ekki látið hann stjórna því“ Valur Páll Eiríksson skrifar 12. mars 2026 09:00 Ibrahima Baldé leitar nú á ný mið. Vísir/Ernir Leikmenn fá ekki að stýra því hvar þeir spila á vellinum. Af þeim sökum er Ibrahima Baldé, lykilmaður í liði Þórs er það vann Lengjudeildina á síðustu leiktíð, farinn frá Akureyri.
Svo segir Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs frá Akureyri, í samtali við Vísi. Fregnir bárust af því í gær, heldur óvænt, að Baldé væri á förum. Í gærkvöld var svo opinberað að Baldé hefði samið við Vestra, hvar hann spilaði áður en hann hélt til Akureyrar. „Hann er bara að fara frá okkur. Það var ágreiningur um hvar hann ætti að spila á vellinum. Hann vildi ekki spila þá stöðu sem við vildum að hann myndi spila. Það er klárt í okkar bókum að leikmaðurinn stjórnar ekki hvar hann spilar á vellinum eða hvar hann spilar,“ segir Sigurður við Vísi og bætir við: „Það er eitthvað sem þjálfararnir ráða. Okkur fannst það ekki passa inn í okkar hluti að einn leikmaður væri ekki að fylgja því sem liðið væri að gera. Okkur fannst hann því ekki nægilega tengdur verkefninu. Við ákváðum því að staldra við þar og kveðja hann.“ Vildi ekki spila frammi Baldé, sem er þrítugur Senegali, hefur spilað sem miðjumaður allan sinn feril og sinnti því hlutverki með bravör er Þór vann Lengjudeildina síðasta sumar. Hann skoraði átta mörk sem framliggjandi miðjumaður á síðasta ári. Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs Akureyri.Vísir/Ernir Í ár sá þjálfarateymi Þórs hins vegar fyrir sér að spila honum sem fremsta manni. Við það vildi Senegalinn ekki una. „Við höfðum séð fyrir okkur að hann myndi spila frammi en hann vildi spila á miðjunni. Okkur finnst við vera með miðjumenn sem eru betri en hann en erum ekki með níu. En við þurfum þá að fá níu inn í staðinn og þá gátum við ekki beðið lengur með það að láta Ibra fara,“ segir Sigurður. Glatað en óhjákvæmilegt Er ekki leiðinlegt að sjá á eftir lykilmanni? „Þetta er bara hræðilegt. Ibra er bara dýrkaður og dáður hér, svona fan favorite eins og maður segir. Vel liðinn í hópnum og allt svoleiðis en þessi ákvörðun er algjörlega tekin með liðið í forgrunni,“ „Við gátum ekki verið að láta hann stjórna því hvernig við myndum spila eða gera hlutina. Þá bara skilja leiðir og það er allt í lagi. Það er samt glatað, hann er einn af stórum punktum þess að við fórum upp. Við sáum hlutina fyrir okkur allt öðruvísi en þetta er bara lendingin og við stöndum og föllum með henni. En við teljum þetta vera hárrétta ákvörðun,“ segir Sigurður. Nú er næsta mál á dagskrá því að finna framherja til að taka við meintri stöðu Baldé. „Já. Við erum með einhverja leikmenn í sigtinu og erum á markaðnum núna og munum fá sóknarmann inn. Það er klárt.“
Besta deild karla Þór Akureyri Íslenski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Enski boltinn Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum Handbolti Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Enski boltinn Hengja upp treyju lágvaxnasta leikmannsins í sögu NBA Körfubolti „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Enski boltinn Heimir farinn frá Fylki Íslenski boltinn Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Fleiri fréttir Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Sjá meira