Úthýsa aðalsmönnum úr lávarðadeild breska þingsins Kjartan Kjartansson skrifar 11. mars 2026 15:33 Í rúm sjö hundruð ár hefur lávarðadeild breska þingsins verið skipuð hertogum, jörlum og greifum sem erfðu sætin sín. Það breytist þegar þessu þingi lýkur í vor. AP/Kirsty Wigglesworth Hertogar, jarlar og greifar fá ekki lengur sæti í lávarðadeild breska þingsins í gegnum erfðir eftir að samkomulag náðist um að af afnema það aldagamla fyrirkomulag í gær. Einhverjir þeirra eru þó sagðir fá að sitja áfram í deildinni eftir breytinguna.
Breska lávarðadeildin er næst stærsta þingdeild í heimi með rúmlega átta hundruð fulltrúa. Um það bil einn af hverjum tíu þeirra sem þar sitja erfði sæti sitt í krafti aðalstignar. Hinn hlutinn er lífstíðarskipaðir fulltrúar; uppgjafarstjórnmálamenn, samfélagsleiðtogar og aðrir sem ríkisstjórnir skipa. Ríkisstjórn Verkamannaflokksins lagði fram frumvarp um að svipta aðalsmenn erfðasæti sínu í þingdeildinni á þessu þingi. Lávarðadeildin lagðist á móti en lét loks undan í gær, að sögn AP-fréttastofunnar. Erfðasætin hverfa úr lávarðadeildinni þegar þessu þingi lýkur í vor. Málamiðlun sem ríkisstjórnin gerði við lávarðana felur það aftur á móti í sér að ótilgreindur fjöldi aðalsmannanna fær að sitja áfram í lávarðadeildinni en nú sem fulltrúar skipaðir til lífstíðar. Karl þriðji konungur þarf enn að leggja blessun sína yfir frumvarpið en það er sagt formsatriði. Umræða um lögmæti aldagamals fyrirkomulags lávaradeildar breska þingsins blossaði upp af krafti á ný í kjölfar uppljóstrana um tengsl Peters Mandelson, lávarðs, við Jeffrey Epstein.AP/Carl Court Þingseta eigi að byggjast á verðleikum Nick Thomas-Symonds, ráðherra ríkisstjórnarinnar, sagði að með frumvarpinu yrði loks bundinn endir á forneskjulegt og ólýðræðislegt fyrirkomulag. Þingseta ætti alltaf að byggjast á verðleikum en ekki á erfðum titlum sem útdeilt var fyrir mörgum öldum. Stefna Verkamannaflokksins er að gera enn frekari breytingar á skipan þingsins: útrýma lávarðadeildinni og koma í staðinn á fót nýrri þingdeild sem á að endurspegla þjóðina betur. Rúmur aldarfjórðungur er liðinn frá því að ríkisstjórn Tony Blair hóf vegferðina að útrýma aðalsmönnum úr lávarðadeildinni. Á sjöunda hundrað þeirra misstu sæti sitt árið 1999 en hátt í hundrað fengu að sitja áfram tímabundið.
Bretland Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Fleiri fréttir Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi Sjá meira