Fleury fór á kostum gegn FH Aron Guðmundsson skrifar 10. mars 2026 22:35 Frá leik Þór/KA gegn FH á góðum sumardegi í Bestu deildinni á sínum tíma. Vísir/Hulda Margrét Erin Fleury fór mikinn í liði Þórs/KA sem hafði betur, 4-2, gegn FH þegar að liðin mættust í Lengjubikar kvenna í Boganum á Akureyri í kvöld. Á Kópavogsvelli unnu Íslands- og bikarmeistarar Breiðabliks svo 6-0 sigur á ÍBV.
Erin skoraði fyrstu tvö mörk leiksins á fimmtu og fimmtándu mínútur áður en að Eva Marín Sæþórsdóttir klóraði í bakkann fyrir FH og staðan því orðin 2-1. Áður en að fyrri hálfleikur hafði runnið sitt skeið fullkomnaði Fleury þrennu sína með marki á 40.mínútu og kom Þór/KA í stöðuna 3-1. Amalía Árnadóttir bætti við fjórða marki Þór/KA snemma í seinni hálfleik áður en að Elín Björg N. Símonardóttir minnkaði muninn fyrir FH en það mark reyndist lokamark leiksins. Lokatölur 4-2 sigur Þór/KA sem tyllir sér þar með upp í annað sæti síns riðils en Þróttur Reykjavík getur komið sér upp fyrir Norðankonur og tryggt sér sæti í undanúrslitum mótsins með hið minnsta jafntefli gegn FHL í lokaumferðinni. Lið Stjörnunnar er á toppi riðilsins og getur ekki farið neðar en í 2.sæti hans og hefur því tryggt sér sæti í undanúrslitum mótsins. Í riðli tvö mættust svo lið Breiðabliks og ÍBV á Kópavogsvelli. Breiðablik ríkjandi Íslands- og bikarmeistari á meðan að ÍBV er nýliði í Bestu deildinni á komandi tímabili. Breiðablik fór með öruggan sigur af hólmi í kvöld. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (x2), Líf Joostdóttir van Bemmel, Agla María Albertsdóttir (x2), og Edith Kristín Kristjánsdóttir skoruðu mörk liðsins í kvöld. Með sigrinum lyftir Breiðablik sér í toppsæti síns riðils eftir þrjár umferðir. Liðið er með sex stig á toppnum, sama stigafjölda og Víkingur og Valur en betri markatölu. ÍBV er á botni riðilsins með eitt stig.
Lengjubikar kvenna Þór Akureyri KA FH Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Fótbolti Treyja Gylfa fór á milljón Íslenski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Fleiri fréttir Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristinn og Kristinn Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“