Bera kennsl á fleiri möguleg fórnarlömb lögreglumanns Lovísa Arnardóttir skrifar 10. mars 2026 17:43 Maðurinn starfaði fyrir lögregluna frá 2000 til 2009. Vísir/EPA Yfirvöld á Norður-Írlandi hafa borið kennsl á fjölmörg hugsanleg fórnarlömb fyrrverandi lögreglumanns sem er sakaður um nauðgun og önnur kynferðisbrot.
Lögreglumaðurinn var handtekinn í desember 2025 og er grunaður um að hafa framið meira en tíu brot, þar á meðal nauðgun, á meðan hann starfaði í lögreglunni á árunum 2000 til 2009. „Við höfum borið kennsl á fjölmörg hugsanleg fórnarlömb, ásamt umtalsverðum fjölda vitna,“ er haft eftir Hugh Hume, framkvæmdastjóra umboðsmanns lögreglunnar í frétta á vef Guardian, í yfirlýsingu. „Við höfum einnig lagt hald á mikið magn gagna, þar á meðal verulegt magn stafrænna gagna, við húsleit.“ Þar kemur einnig fram að mati Hume geti umfang rannsóknarinnar þýtt að önnur mál verði fyrir áhrifum. „Þar sem áhrif á fórnarlömb, umfang og flækjustig rannsóknarinnar hafa komið í ljós vinnum við nú að því að tryggja að þessi rannsókn fari fram eins fljótt og auðið er. Við erum því að verja öllum tiltækum úrræðum til að tryggja að hún fókusi á fórnarlömbin, að hún verði skilvirk og árangursrík. Úrræði okkar eru takmörkuð og þetta þýðir að afgreiðslutími annarra mála okkar gæti orðið fyrir áhrifum.“ Þar segir Hume einnig að fréttir af rannsókninni geti verið íþyngjandi fyrir aðra sem geta haft sömu reynslu. Hann ítrekar að þolandi beri ekki ábyrgð og hvetur möguleg fórnarlömb til að hafa samband við lögregluna. „Við viljum fullvissa fórnarlömb um að þetta sé ekki þeim að kenna og ef þau kjósa að hafa samband við okkur munum við hlusta, við munum rannsaka og við munum gera það óháð lögreglunni.“ Styðja forgangsröðun Þingmenn á írska þinginu hafa tjáð sig um málið samkvæmt frétt Guardian og tekið undir ákvörðun um að forgangsraða rannsókninni. Doug Beattie, þingmaður Sambandsflokks Ulster, sagði að hugsanleg fórnarlömb yrðu að fá viðeigandi stuðning og upplýsingar. „Þau fórnarlömb og vitni sem kunna ekki að hafa gefið sig fram enn þá verða að fá fullvissu um að þetta sé ekki þeirra sök og fá traust á rannsókn umboðsmannsins.“ Hann sagði skiljanlegt að forgangsraða rannsókninni þótt það geti haft áhrif á önnur mál. Annar þingmaður, Colin McCrath, kallaði eftir auknu fjármagni fyrir umboðsmann lögreglunnar.
Írland Kynferðisofbeldi Mest lesið Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira