Tækluðu spurningu sem brennur á öllum eftir fyrstu keppni tímabilsins Aron Guðmundsson skrifar 10. mars 2026 18:31 Staða Ferrari var afar góð á fyrstu hringjum ástralska kappakstursins um nýliðna helgi Vísir/Getty Þeir Kristján Einar Kristjánsson og Bragi Þórðarson, Formúlu 1 lýsendur og umsjónarmenn hlaðvarpsins Pitturinn, veltu því fyrir sér hvort að með annari keppnisáætlun hefði Ferrari geta unnið fyrstu keppni tímabilsins í Ástralíu.
Fyrsta keppnishelgi tímabilsins fór fram í Albert Park í Ástralíu um nýliðna helgi og þar var það lið Mercedes sem hrósaði sigri en aðalökuþór liðsins George Russell endaði í fyrsta sæti og liðsfélagi hans Andrea Kimi Antonelli í því öðru á undan Ferrari ökuþórunum tveimur. Stafrænn öryggisbíll var settur á ellefta hring kappakstursins. Þá var Charles Leclerc, ökuþór Ferrari í fyrsta sæti með George Russel hjá Mercedes fyrir aftan sig og liðsfélaga sinn Lewis Hamilton í þriðja sæti. Báðir bílar Mercedes fóru inn á þjónustusvæðið undir stafræna öryggisbílnum en Ferrari kaus að kalla hvorugan af sínum ökuþórum inn á þjónustusvæðið. Yfirburðir Mercedes í keppninni voru miklir og er ljóst að liðið er með besta bílinn í upphafi keppnistímabilsins en gullna spurningin eftir keppni var sú hvort að Ferrari, með því að kalla inn annan eða báða af ökuþórum sínum á þjónustusvæðið á svipuðum tíma og Mercedes, hefðu geta unnið keppni helgarinnar? Sú spurning var tækluð í Pittinum af þeim Kristjáni Einari og Braga Þórðar. „Þeir hefðu allavegana geta átt séns,“ sagði Kristján Einar. Með því að stoppa á svipuðum tíma og Mercedes, undir stafrænum öryggisbíl hefðu líkur Charles Leclerc, ökuþór Ferrari, á sigri aukist. „Hann hefði farið úr núll prósent sigurlíkum upp í svona þrjátíu prósent sigurlíkur.“ Bragi var á svipuðum nótum en taldi líkur Ferrari á sigri ekki geta hafa verið svona miklar. „Ég var að pæla í þessu. Mín kenning er sú að það sé til sá veruleiki að Leclerc hefði geta unnið þessa keppni með því að stoppa á svipuðum tíma og Mercedes. En þó þeir hefðu stoppað þá hefði ég talið svona eins til átta prósent líkur að hann hefði unnið keppnina. Russell á Mercedes bílnum hefði verið í rassgatinu á honum allan tímann“ Ferrari hefði allavegana átt að kalla annan af sínum ökuþórum inn á þjónustusvæðið í þjónustuhlé og taka þar Pittsbræður undir óánægju Lewis Hamilton, reynsluboltans í liði Ferrari sem kallaði eftir því að slíkt yrði gert. Umræðu Kristjáns Einars og Braga Þórðar í Pittinum um Ástralíu kappaksturinn, fyrstu keppni tímabilsins í Formúlu 1, má hlusta á í heild sinni hér fyrir ofan.
Akstursíþróttir Mest lesið Viðar Örn settur í agabann Íslenski boltinn Spilar ekki með landsliðinu vegna forræðisdeilu Körfubolti Karlotta hljóp alls 742,6 kílómetra í Búlgaríu Sport „Það er komin pressa“ Körfubolti „Þeir eru bara dónalegir og rífast til baka“ Sport ÍBV - Valur | Fá aðra tilraun til að tryggja sér titilinn Handbolti Fjölluðu um aukið hártog: „Þetta er galið og út með þetta“ Íslenski boltinn „Aðeins þeim sem vilja ekki að Arsenal verði meistari fannst þetta ekki vera brot“ Enski boltinn De Zerbi ósáttur við dómarana: „Kannski fundu þeir fyrir pressu út af Arsenal leiknum“ Enski boltinn Alfreð fékk heiðursorðu Handbolti Fleiri fréttir Nítján ára í hóp með Schumacher og Senna Antonelli hélt uppteknum hætti Formúlunni flýtt vegna storms Antonelli fékk færri tilraunir en tók ráspólinn McLaren með bestu sprettina í Miami Heimsmeistarinn fremstur í sprettinum Leclerc sneggstur á æfingum Verstappen fámáll um framtíð sína Betur fór en á horfðist er faðir Verstappen lenti í óhappi Formúlan snýr aftur til Tyrklands Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Hægri hönd Verstappens skiptir um lið Ungstirnið slær hvert metið á fætur öðru Dóttir Schumachers rýfur þögnina eftir þrettán ár Undrabarn slær í gegn í Formúlu 1 Sjá meira
De Zerbi ósáttur við dómarana: „Kannski fundu þeir fyrir pressu út af Arsenal leiknum“ Enski boltinn
De Zerbi ósáttur við dómarana: „Kannski fundu þeir fyrir pressu út af Arsenal leiknum“ Enski boltinn