Snúa sér aftur að kjarnorku fimmtán árum eftir Fukushima Samúel Karl Ólason skrifar 10. mars 2026 14:00 Lokanir eru enn í gildi víða á svæðinu við orkuverið í Fukushima. AP/Louise Delmotte Í nótt verða fimmtán ár liðin frá því að kjarnakljúfar orkuversins í Fukushima í Japan bræddu úr sér. Það gerðist eftir stóran jarðskjálfta og flóðbylgju sem skall á Japan í kjölfarið og leiddi það til versta kjarnorkuslyss heimsins frá slysinu í Tjernóbil.
Jarðskjálftinn var 9,0 stig og skall á klukkan 2:46 að staðartíma, aðfaranótt 11. mars árið 2011. Um klukkustund síðar skall flóðbylgjan á stórum hluta austurstrandar Japan. Rúmlega 22 þúsund manns dóu vegna flóðbylgjunnar en hún þurrkaði út heilu bæina. Kjarnorkuverið skemmdist lítillega í jarðskjálftanum sjálfum en það var hannað með hættu á jarðskjálftum í huga. Flóðbylgjan sem fylgdi í kjölfarið olli þó miklum skemmdum á kælikerfum orkuversins. Þann 12. mars varð stór sprenging í einum kjarnakljúfi og tveimur dögum síðar bræddu tveir til viðbótar úr sér. Mikil geislun barst frá orkuverinu og þurftu tugir þúsunda íbúa á svæðinu að flýja heimili sín. Mikið magn af geislavirkum jarðvegi hefur verið flutt frá Fukushima.AP/Louise Delmotte Áratugalangt hreinsunarstarf fyrir höndum Síðan þá hefur geislun minnkað verulega en yfirvöld í Japan hafa átt í umfangsmiklu hreinsunarstarfi frá því slysið varð. Búið er að loka þökunum yfir kjarnakljúfunum aftur og þá er einnig búið að reisa stóran varnarmúr við orkuverið sem á að verja það gegn frekari flóðbylgjum. Í framtíðinni stendur til að fjarlægja geislavirk efni úr kælilaugum kjarnakljúfanna en vitað er til þess að í laugunum þremur má finna að minnsta kosti 880 tonn af bræddu kjarnorkueldsneyti, samkvæmt frétt AP fréttaveitunnar. Búið er að fjarlægja eldsneytisstangir sem bráðnuðu ekki úr orkuverinu. Sjá einnig: Vatnið úr Fukushima losað út í sjó í vor eða sumar Geislun þar er þó enn gífurlega mikil og er í raun lítið vitað um ástandið í laugunum. Forsvarsmenn Toky Electric Powe Company (TEPCO) segja að þróa eigi sérstaka róbóta til að greina stöðuna í laugunum og svo aðra róbóta til að fjarlægja kjarnorkueldsneytið. Búist er við því að hreinsunarstarfið muni taka áratugi. Sjá einnig: Vita lítið um ástandið í Fukushima þrettán árum síðar Sýni eru reglulega tekin á svæðinu kringum kjarnorkuverið. Landbúnaðarafurðir eru greindar sérstaklega til að tryggja að þær séu neysluhæfar en sala á ýmsum ávöxtum, sveppum, fiski og öðru er enn bönnuð á nokkrum svæðum. Einn viðmælandi sem ræddi við AP fréttaveituna sagði til að mynda frá því að hann hefði nýverið greint sýni úr villisvíni sem veitt var á svæðinu. Kjötið reyndist verulega geislað, eða um hundrað sinnum meira en leyfilegt er að neyta. Gengur hægt að ræsa kjarnakljúfa aftur Eftir slysið lögðu yfirvöld í Japan af stað í þá vegferð að draga úr orkuframleiðslu með kjarnorku en það ferðalag var ekki langt. Tveimur árum síðar var snúið við og árið 2022 var ákveðið að flýta ræsingu á kjarnakljúfum sem slökkt hafði verið á og auka orkuframleiðslu. Fyrir slysið í Fukushima framleiddu Japanar tæplega þriðjung orku sinnar í 54 kjarnakljúfum. Á tveimur árum eftir Fukushima var slökkt á mörgum þeirra og hefur gengið hægt að kveikja á þeim aftur, sé það yfir höfuð hægt. Kjarnorkuverið í Fukushima hafði verið hannað með jarðskjálfta í huga en yfirnenn orkufyrirtækisins TEPCO sögðust ekki hafa getað séð flóðbylgjuna fyrirAP/Kyodo News Í frétt Reuters segir að í janúar hafi tekist að kveikja á öllum sjö kjarnakljúfunum í Kashiwazaki-Kariwa, stærsta kjarnorkuveri heims. Þrátt fyrir það er einungis búið að kveikja aftur á fimmtán af þeim 33 kjarnakljúfum sem til stendur að ræsa aftur. Japanar flytja um 95 prósent af allri olíu sinni frá Mið-Austurlöndum og hefur óreiðan þar og stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran, ýtt undir stuðning þjóðarinnar við kjarnorku. Kannanir benda samkvæmt Reuters til þess að um 51 prósent Japana styðji það að kveikja aftur á öllum kjarnakljúfunum en stuðningurinn er langmestur meðal ungs fólks. Skortur á hæfu starfsfólki gæti þó gert vinnuna erfiða, þar sem fáir sækja nám sem nýtist við rekstur kjarnorkuvera. Árið 2024 hófu 177 nemendur slíkt nám. Árið fyrir slysið í Fukushima var fjöldinn 317 en í upphafi tíunda áratugarins var hann 673. Íbúar á svæðinu taka þátt í því að vakta geislun.AP/Louise Delmotte
Japan Kjarnorka Mest lesið Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Stefán Einar og Diljá Mist mættu Helgu Völu og Baldri Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Erlent Fleiri fréttir Kærastinn var á staðnum Telur sig geta sjarmað kjarnorkuvopnin af Kim, aftur Lentu geimflaug í fyrsta sinn Taka snúning á risasvartholi með hjálp skruggufljótrar stjörnu Nýtt spillingarmál skekur Kænugarð Kafari handtekinn vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Fatlaður maður lést eftir að lögregla skaut hann með rafbyssu Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Sjá meira